Breyting á rekstri Bláskógaskóla og leikskólans Álfaborgar
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur samþykkt að gera breytingu á rekstri Bláskógaskóla á Laugarvatni og leikskólans Álfaborgar í Reykholti þannig að í stað þess að leik- og grunnskóladeild Bláskógaskóla séu reknar saman verði grunnskóladeild rekin sér undir stjórn skólastjóra. Leikskóladeild Bláskógaskóla og leikskólinn Álfaborg verði rekin sem einn leikskóli á tveimur starfsstöðvum, undir stjórn leikskólastjóra, sem verði með skilgreinda viðveru á báðum starfsstöðvum.
Staða skólastjóra Bláskógaskóla verður auglýst laus til umsóknar, en Guðrún Rakel Svandísardóttir hefur gegnt henni samkvæmt tímabundnu samkomulagi þetta skólaár, en hún var ráðin til að gegna stöðu aðstoðarskólastjóra sumarið 2025. Jafnframt verður staða aðstoðarleikskólastjóra á Laugarvatni auglýst laus til umsóknar. Lieselot M. Simoen, leikskólastjóri, sem gegnt hefur stöðu leikskólastjóra leikskóladeildar Bláskógaskóla og leikskólans Álfaborgar frá því í ágúst 2025, mun gegna stöðu leikskólastjóra. Þegar þessar breytingar hafa gengið í gegn verður því Bláskógaskóli skipaður skólastjóra- og aðstoðarskólastjóra og leikskóli skipaður leikskólastjóra og tveimur aðstoðarleikskólastjórum, á sitthvorri starfsstöðinni.
Ákvörðun þessi var tekin að undangenginni umfjöllun í skólanefnd, þar sem sitja, auk kjörinna fulltrúa, áheyrnarfulltrúar foreldra leik- og grunnskólabarna, kennara og starfsfólks leikskóla og skólastjórnenda. Á skólanefndarfundinum kom fram að almenn ánægja hafi verið með stjórnunarfyrirkomulagið eins og það hefur verið í vetur og er því verið að festa það í sessi, þó með því að bæta við aðstoðarleikskólastjóra og aðstoðarskólastjóra í Bláskógaskóla, umfram það sem verið hefur í vetur. Í samþykkt sveitarstjórnar kemur fram að fyrirkomulagið verði endurmetið að tveimur árum liðnum. Áfram er gert ráð fyrir miklu og góðu samstarfi leik- og grunnskóla á Laugarvatni, auk samstarfs beggja starfsstöðva leikskóla, byggt á faglegum áherslum sem hæfa hvoru skólastigi.