Bláskógabyggð skilar góðum rekstri
Ársreikningur Bláskógabyggðar fyrir árið 2025 var samþykktur af sveitarstjórn 13. maí 2026. Rekstur sveitarfélagsins skilaði jákvæðri niðurstöðu á árinu, bæði í A-hluta og samstæðu A- og B-hluta. Heildartekjur voru ríflega 3,3 milljarðar kr. og rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 330 m.kr.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 601 m.kr. í A- og B-hluta. Þar af voru fjárfestingar A-hluta 423 m.kr. Helstu fjárfestingar ársins voru í íþróttamannvirkjum og á sviði gatnagerðar og göngustíga, fjárfest var í fráveitu og heitavatnsöflun, auk ýmissa smærri verkefna.
Skuldaviðmið sveitarfélagsins var 48% hjá A- og B-hluta árið 2025. Viðmiðið lækkar frá fyrra ári, þegar það var 54% hjá A- og B-hluta. Skuldaviðmið sveitarfélagsins er því vel undir lögbundnu 150% hámarki sveitarstjórnarlaga.
Íbúum Bláskógabyggðar fjölgaði á milli ára. Íbúafjöldi 1. janúar 2026 var 1.453 samanborið við 1.362 árið áður. Fjölgunin nemur 91 íbúa, eða um 6,7%.
Niðurstaða ársins 2025 er jákvæð og rekstur sveitarfélagsins styrkist milli ára. Tekjur hækka, rekstrarniðurstaða batnar og eiginfjárstaða styrkist. Fjárfestingar ársins eru verulegar, einkum í íþróttamannvirkjum, veitukerfum og innviðum. Fræðslu- og uppeldismál eru áfram langumfangsmesti málaflokkurinn í rekstri sveitarfélagsins. Ársreikningurinn sýnir því almennt sterka rekstrarafkomu og aukna fjárfestingu í innviðum, samhliða hækkun eigna og eigin fjár. Skuldaviðmið helst lágt og undir lögbundnum mörkum og fjölgun íbúa styður við vöxt sveitarfélagsins.