Finnbogi Pétursson hlaut íslensku myndlistarverðlaunin
Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins og tók við verðlaununum úr hendi Loga Einarssonar ráðherra menningarmála. Verðlaunin hlýtur hann fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.
Við óskum Finnboga og Listasafni Árnesinga innilega til hamingju með viðurkenninguna og stórglæsilega sýningu sem við hvetjum íbúa til þess að skoða. Það er frítt inn á safnið sem er í Hveragerði og opnunartíminn er frá kl. 12 - 17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Árnesinga er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga, en öll sveitarfélögin í Árnessýslu eiga aðild að henni. Þau eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg og Sveitarfélagið Ölfus.
Ljósmynd: Tekin af Facebook síðu Íslensku myndlistarverðlaunanna