Flokkstjóri óskast
Fréttir
02.03.2026
Bláskógabyggð óskar eftir að ráða flokkstjóra yfir vinnuskóla sveitarfélagsins og umhirðu opinna svæða og tilfallandi umhverfisverkefna sumarið 2026. Aldurstakmark er 20 ár, kröfur eru gerðar um almenn ökuréttindi og hreint sakavottorð. Starfstími er frá lokum maí til loka júlí. Möguleiki er á starfi til 20. ágúst. Starfsvæðið er á Laugarvatni, í Laugarási og í Reykholti. Umsóknarfrestur er til 18 mars. nk. Einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni.
Umsóknir berist á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is.
Upplýsingar gefur Kristófer í síma 860-4440 og 480- 3000.