Forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Fréttir 21.02.2026

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. leitar að öflugum og skipulögðum aðila í starf forstöðumanns.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á faglega stjórnun, góða yfirsýn og hæfni til að innleiða og stýra verkefnum.

Ásamt forstöðumanni eru starfandi tveir deildarstjórar á sviði velferðarþjónustu og skólaþjónustu.

Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framhaldi sem skoðað verður að þeim tíma liðnum.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stefnumótun og eftirfylgni með markmiðum byggðasamlagsins
  • Almenn verkefnastýring og innleiðing nýrra verkferla
  • Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál
  • Þátttaka í stjórnarfundum og undirbúningur þeirra
  • Yfirumsjón með innleiðingu og vinnulagi í farsæld barna
  • Skipulag og utanumhald heimaþjónustu
  • Samskipti við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu), m.a. vegna þjónustu og dagdvalar
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórn og aðra hagaðila
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, verkefnastýringu og mannauðsmálum
  • Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur
  • Leiðtogahæfni og geta til að innleiða breytingar
  • Góð skipulagsfærni og yfirsýn
  • Rík færni í samskiptum og samstarfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði