Fyrsti fundur sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar kom saman til fyrsta fundar kjörtímabilið 2026-2030 í dag, miðvikudaginn 2. júní. Á fundinum var Helgi Kjartansson kjörinn oddviti sveitarstjórnar og Stefanía Hákonardóttir kjörin varaoddviti.
Á fundinum var jafnframt samþykkt að ráða Ástu Stefánsdóttur sem sveitarstjóra Bláskógabyggðar, en hún hefur gegnt því starfi undanfarin átta ár.
Sveitarstjórn skipa af T-lista: Helgi Kjartansson, Stefanía Hákonardóttir, Áslaug Alda Þórarinsdóttir, Ísak Eyfjörð Arnarson, Kristján Einir Traustason, og af Þ-lista Anna Greta Ólafsdóttir og Valdís María Smáradóttir. T-listi hlaut 68,5% atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum og Þ-listi 31,5% .
Kosið var í flestar nefndir sveitarfélagsins, en kjöri fulltrúa í Menningarmálanefnd og Æsku- og íþrótta- og lýðheilsunefnd frestað þar sem til stendur að sameina nefndirnar í eina og breyta þarf samþykktum sveitarfélagsins til þess. Einnig voru kjörnir fulltrúar á aðalfundi samstarfsverkefna og byggðasamlaga sem sveitarfélagið á aðild að.