Hross í óskilum

Fréttir 26.06.2026

Bláskógabyggð leitar eftir eiganda óskilahross.

Rauðstjörnótt glófext hryssa, tveggja til fjögurra vetra og í góðum holdum, var handsömuð við Laugarvatn laugardaginn 20. júní sl, sjá meðf. mynd. Hryssan er stygg og örmerki hefur ekki fundist.

Ef enginn eigandi finnst verður hrossið selt á uppboði með vísan til 4. mgr. 59. gr. laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Bláskógabyggðar, sími: 480 3000 og á netfanginu blaskogabyggd@blaskogabyggd.is