Hverabraut 16-18 til sölu

Fréttir 02.07.2026

Fasteignin Hverabraut 16-18 á Laugarvatni er auglýst til sölu. Um er að ræða 1.394 fermetra byggingu sem áður hýsti heimavist og hentar því vel sem grunnur að margskonar uppbyggingu. 

Hægt er að nýta núverandi byggingarheimild samkvæmt samþykktu deiliskipulagi til stækkunar um 422 fm. 

Bláskógabyggð, sem er eigandi byggingarinnar, leitar eftir traustum kaupanda að eigninni sem hefur það að leiðarljósi að styrkja góða uppbyggingu á svæðinu.

Óskað er eftir tilboðum í eignina og að áhugasamir kaupendur geri grein fyrir áformum um nýtingu fasteignarinnar og mun Bláskógabyggð hafa slík áform til hliðsjónar við mat á tilboðum.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, asta@blaskogabyggd.is s. 891 8991.