Jónsmessubrenna í Reykholti
Fréttir
24.06.2026
Jónsmessubrenna við Vegholt nk. laugardag
Þá er að líða að árlegu Jónsmessubrennunni. Að vanda verður brennan framan við gámasvæðið við Vegholt í jaðri Reykholts. Hún verður haldin laugardaginn 27. júní og hefst kl 20:00. Þau sem þurfa að henda hreinu timbri á næstunni mega mjög gjarnan leggja það frá sér á brennustæðinu. Allir velkomnir og ekki væri verra ef lagið yrði tekið.