Kjörstaðir í Bláskógabyggð

Fréttir 09.05.2026

Kjörstaðir í Bláskógabyggð

Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga hinn 16. maí 2026 eru tveir:

  1. Félagsheimilið Aratunga, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum og einstaklinga með ótilgreint heimilisfang.
  2. Bláskógaskóli Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísa þeim ef óskað er.

Reykholti 8. maí 2026

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar