Kjörstaðir í Bláskógabyggð

Fréttir 25.08.2026

Laugardaginnn 29. ágúst nk verður kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.

Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru tveir:

  1. Reykholtsskóli, Reykholti, fyrir kjósendur í Biskupstungum. Einnig fyrir Íslendinga búsetta erlendis og einstaklinga með ótilgreint heimilisfang.
  2. Bláskógaskóli, Lindarbraut 6, Laugarvatni, fyrir kjósendur í Laugardal og Þingvallasveit.

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísa þeim ef óskað er.

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar mun hafa aðsetur í Reykholtsskóla. Sími formanns er 868 2684.

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar