Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Fréttir 30.09.2026

Fulltrúar Bláskógabyggðar á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 voru Helgi Kjartansson, oddviti, Stefanía Hákonardóttir, varaoddviti, og Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri. Þingið var haldið á Akureyri dagana 23. til 25. september. Á þinginu var kjörin ný stjórn Sambandsins og mótuð stefna þess til næstu fjögurra ára. Einnig var samþykkt ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagasmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Í ályktuninni kemur eftirfarandi fram:

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktar um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu. ​