Lausar lóðir við Herutún og Traustatún
Fréttir
20.08.2026
Bláskógabyggð auglýsir lausar til úthlutunar lóðir við Herutún og Traustatún á Laugarvatni. Um er að ræða 7 lóðir við Herutún og 3 lóðir við Traustatún. Við Herutún er um að ræða einbýlis-, par- og raðhúsalóðir og við Traustatún er eftir ein parhúsalóð og tvær lóðir fyrir 2ja hæða fjölbýli. Gatnagerð vegna Herutúns og seinni áfanga Traustatúns er hafin. Einnig er í boði ein parhúsalóð við Skólatún. Listi yfir lausar lóðir.