Malbikunarframkvæmdir

Fréttir 13.10.2026

Vegagerðin hefur gefið heimild fyrir eftirfarandi framkvæmdum, ef veður leyfir:

Fimmtudaginn 15. okt er stefnt að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi milli Selfoss og Hveragerðis. Suðurlandsvegur verður lokaður frá Selfossi í átt að Hveragerði á meðan að á framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Ölfusveg.

Áætlað er að framkvæmdir standi yfir frá kl. 09:00 til 20:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.