Malbiksviðgerðir á Laugarvatnsvegi

Fréttir 29.10.2026

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir föstudaginn 30. október.

Malbiksviðgerðir á Laugarvatnsvegi milli Hjálmsstaða og Miðdalskots. Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 föstudaginn 30. október.

Opið verður fyrir umferð allan tímann en umferð gæti tafist aðeins.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.