Niðurskurður framlaga til framhaldsskóla
Fréttir
08.06.2026
Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar hinn 3. júní s.l. var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn áformum ríkisstjórnarinnar sem birtast í fjármálaáætlun um samdrátt í framlögum til framhaldsskóla. Í fjármálaáætlun er lögð til lækkun framlaga bæði til rekstrar og fjárfestinga á hverju ári til ársins 2030. Á umliðnum árum hefur framhaldsskólunum verið gert að hagræða í rekstri og hafa þær hagræðingaraðgerðir þegar haft neikvæð áhrif. Viðbótar niðurskurður fjárframlaga mun bitna á námi framhaldsskólanema og koma niður á starfsumhverfi starfsmanna skólanna. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggur því til að fallið verði frá fyrirhugaðri skerðingu framlaga.
Slóð á fjármálaáætlun: Fjármálaáætlun