Pistill oddvita

Fréttir 02.10.2026

Pistill oddvita, október 2026

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram á Akureyri dagana 23. – 25. sept. sl. Landsþingið er haldið á fjögurra ára fresti eða sama ár og sveitarstjórnarkosningar eru haldnar. Á landsþinginu var stefna sambandsins mótuð til næstu fjögurra ára. Það var fjallað um fjölmörg atriði sem snerta sveitarstjórnarstigið og mun verða leiðarljós sambandsins út þetta kjörtímabil. Á þinginu var samþykkt samhljóða tillaga um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Fulltrúar Bláskógabyggðar á þinginu voru ásamt undirrituðum, Stefanía Hákonardóttir, varaoddviti, og Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.

Sveitarstjórn mun á næsta fundi sínum, sem haldinn verður í næstu viku, taka fyrir tillöguna sem samþykkt var á landsþinginu á Akureyri og áskoranir sem borist hafa frá nokkrum verkalýðsfélögum, þess efnis að sveitarfélögin í landinu leggi sitt af mörkum til að bæta stöðu efnahagsmála með því að ekki verði um meira en 2,5% hækkun almennra gjaldskráa að ræða.

Haustfundur Héraðsnefndar Árnesinga og tengdra stofnana var haldinn 29. sept sl. Þær stofnanir sem heyra undir Héraðsnefnd eru; Brunavarnir Árnessýslu, Tónlistarskóli Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga, Héraðsskjalasafn Árnesinga og Listasafn Árnesinga. Allar þessar stofnanir eru sér byggðasamlag og starfa náið saman. Á þessum fundum var farið yfir starfið og fjárhagsáætlarnir fyrir árið 2027 samþykktar. Allar gjaldskrár munu hækka að hámarki um 2,5%. Þetta sýnir vilja sveitarstjórna í sýslunni að gera allt sem í þeirra valdi stefndur til að bæta efnahagsmál þjóðarinnar.

Þingmannafundur var haldinn í Þingborg 29. sept sl. Fundinn sátu fulltrúar sveitarfélaganna í Uppsveitum og Flóa með þingmönnum kjördæmisins. Fundir sem þessir eru haldnir einu sinni til tvisvar á ári, á fundunm koma fulltrúar sveitarfélaganna sínum sjónarmiðum á framfæri við þingmenna kjördæmisins um það sem betur má fara hjá ríkinu. Á þessum fundi lögðu fulltrúar Bláskógabyggðar áherslu á tvö atriði en þau voru hækkun virðisaukaskatts á baðlón og gjaldtaka á ferðamannastöðum við Gullna hringinn. Það er ljóst að hækkun vsk á baðlón og sérstök gjaldtaka á gesti sem heimsækja Þingvelli, Gullfoss og Geysi mun ekki einungis hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna í Bláskógabyggð heldur um allt Suðurland. Ferðaþjónustan er ung heilsárs atvinnugrein, búið er að fjárfesta fyrir umtalsverðar fjárhæðir á síðustu árum í greininni, að fara út í þessar skattheimtur með nánast engum fyrirvara getur ekki gengið upp, það sjá það allir sem hafa reynslu af rekstri. Ef ferðamönnum fækkar og þar með störfum í Bláskógabyggð mun það bitna um leið á fjárhag Bláskógabyggðar með lækkun á útsvarstekjum. Þá hefur sveitarfélagið farið í mikla innviða uppbyggingu samhliða uppbyggingu í ferðaþjónustunni, það verður því ákveðinn forsendubrestur ef þær tekjur sem voru áætlaðar að standa undir fjárfestingunni verða minni en gert var ráð fyrir.

Það hefur gengið vel með allar verklegar framkæmdir síðustu daga og vikurnar. Það er td. búið er að steypa nánast alla kantsteina í þeim göngustígaverkefnum sem ráðast á í á þessu ári. Stefnt er svo á að setja malbik á þá við fyrsta tækifæri. Endurbætur á sundlauginni í Reykholti ganga vel, það hefur mikið gerst síðustu daga og vikurnar. Það er erfitt að segja til með opnum á lauginni, það eru margir þættir sem erfitt er að ráða í en línur fara fljótlega að skýrast með það. Þá eru hitaveituframkvæmdir í fullum gangi hvort sem það tengist beinum framkvæmdum eða undirbúningi að framkvæmdum.

Vinna við fjárhagsáætlun ársins 2027 er farin af stað, næstu vikur fara í að greina reksturhorfur næsta árs og ákveða með fjárfestingar. Það er erfitt að lesa í efnahagshorfurnar en það eru ýmsar blikur á lofti, því er mikilvægt að fjárhagsáætlun sé vel undirbúin og skynsamleg.

Með kveðju,

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar