Pistill oddvita

Fréttir 09.11.2026

Pistill oddvita nóvember 2026

Það er óhætt að segja að síðustu daga og vikur hafi mesti tíminn og áherslan á sveitarstjórnarstiginu farið í að verjast þeim skattaálögum sem hugmyndin er að leggja á ferðaþjónustuna og þá sérstaklega hér í Bláskógbyggð og á Suðurlandi öllu. Við höfum gagnrýnt þessar fyrirætlanir harðlega m.a. vegna þess að þær beinast með sértækum hætti að Bláskógabyggð, fyrirvarinn er nánast enginn, áhrifamat um aðgerðirnar liggur ekki fyrir og svo mætti áfram telja. Þá erum við með lögfræðiálit um að þessi svokallaði Bláskógabyggðarpassi standist ekki EES samninginn. Mikil og góð samstaða er í uppsveitum og á Suðurlandi öllu með gagnrýni á þessar fyrirætlanir. Ef allar þessar skattahækkanir verða samþykktar getur það haft mikil áhrif á atvinnulífið í Bláskógabyggð og þar með á rekstur sveitarfélagsins. Það er áskorun að vinna að fjárhagsáætlun í ljósi óvissunnar. Við skulum vona að þessar fyriráætlanir nái ekki fram að ganga.

Vel gekk að leggja malbik á göngustíga í þéttbýlisstöðunum þetta haustið. Búið er að ljúka við göngustíga í Háholti og Skólatúni á Laugarvatni. Í Reykholti tókst að ljúka lagningu á Borgarrima, Kistuholt og á milli Miðholts og Brekkuholts. Í Laugarási er unnið að göngustíg í Vesturbyggð ásamt því að setja þar upp götulýsingu. Allar þessar framkvæmdir auka umferðaröryggi allra sem búa við göturnar og fara um þær.

Vinna við sundlaugina í Reykholti gengur vel þessa dagana. Mesta áherslan er á að ljúka við flísalagningu á sundlauginni en þeirri vinnu ætti að ljúka í þessum mánuði. Frágangur við pípulagnir og raflagnir er í góðu jafnvægi. Eins og við allar framkvæmdir taka frágangsverkin sinn tíma, vonast er til að hægt verði að opna sundlaugina í desember en það verður að koma í ljós hvernig lokametrarnir þróast.

Verið að leggja allt kapp á að tengja hitaveituholurnar í Reykholti og Laugarvatni við hitaveitukerfin fyrir veturinn. Á næstu dögum ætti að vera hægt að tengja hitaveituholuna í Reykholti með varanlegum hætti. Á Laugarvatni á að tengja hitaveituholuna til bráðabirgða, sú vinna er hafin en verið er að útbúa tæknibúnað sem verður í gámi við hliðina á skrifstofuhúsnæði UTU. Lagnavinna ætti að hefjast í þessari viku. Það á ekki að taka langan tíma að tengja hitaveituholuna við hitaveitukerfið, vonast er til að kerfið verði komið í virkni fyrir næstu mánaðarmót. Að hanna nýtingu á borholunni á Laugarvatni er krefjandi verkefni, þar sem hitaveituholan er inn í miðju þorpi og taka þarf tillit til margra þátt. Vatnið í holunni er mjög heitt og mikil gufumyndun mun eiga sér stað, allt þetta er krefjandi í hönnunarferlinu. Því er farin sú leið að bráðabirgðatengja holun við núverandi hitaveitukerfi.

Veðrið hefur verið okkur hagstætt það sem af er hausti og hefur tíminn verið vel nýttur til ýmissa framkvæmda, þótt á köflum hafi verið ansi blautt. Á næstu dögum verður farið í frágang við gatnamót Skálholtsvegar og Holtagötu í Laugarási en þar þarf að jafna til jarðveg og keyra efni til. Ýmis önnur verk verður farið í á næstu dögum sem of langt mál er að segja frá í þessum pistli.

Sveitarstjórn hefur samþykkt að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af iðnaðarlóðum til 1. júlí 2027. Með þessari ákvörðun er verið að hvetja og létta undir með þeim aðilum sem hafa í hyggju að byggja iðnaðarhúsnæði og eru gatnagerðargjöldin á iðnaðarhúsnæði ein þau hagstæðustu á landinu.

Eins og áður hefur komið fram hefur sveitarstjórn samþykkt að hefja vinnu við umferðaröryggisúttekt í þéttbýlisstöðunum. Markmiðið með þessari vinnu er að efla umferðaröryggi gangandi og akandi vegfarenda. Búið að semja við Eflu verkfræðistofu, að undangenginni verðkönnun, að sinna greiningunni. Sveitarstjórn hefur skipað Sindra Fannar Sigurbjörnsson, Valdísi Maríu Smáradóttur og Önnu Svövu Sverrisdóttur í vinnuhóp til að vinna með Eflu í þessu verkefni.

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið á Hvolsvelli 29. og 30. okt sl. Á þinginu var farið yfir ýmis mál sem snerta heildarhagsmuni Sunnlendinga. Fyrirferðamesta málið á þinginu voru boðaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar, algjör einhugur var á þinginu um að mótmæla þessum áformum. Á heimasíðu SASS, www.sass.is, er hægt að sjá allar ályktanir og bókanir frá þinginu.

Með kveðju,

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar