Ráðning hjá Bláskógaveitu
Bláskógabyggð hefur ráðið Ólaf Jósef Ólafsson til starfa hjá Bláskógaveitu og mun hann fljótlega taka við starfi veitustjóra af Benedikt Skúlasyni, sem gegnt hefur því starfi með farsælum hætti um áratuga skeið.
Ólafur er með BSc-gráðu í vél- og orkutæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og mun ljúka meistararéttindum í pípulögnum á næstunni. Hann býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu á sviði veitu- og lagnamála, tæknilegrar hönnunar og reksturs.
Ólafur hefur starfað sem tæknifræðingur og sérfræðingur við rekstur og þróun framleiðslukerfa hjá Orku Náttúrunnar, þar sem hann meðal annars stýrði tilraunaverkefni tengdu blöndun heits vatns og útfellingu steinefna í þrýstikerfum. Áður starfaði Ólafur hjá Green Energy Iceland við lagnahönnun jarðvarmavirkjana, þar sem hann kom m.a. að hönnun og endurbótum á lagnakerfum virkjana. Hann hefur jafnframt starfað hjá Marel sem söluhönnuður. Ólafur hefur einnig reynslu af eigin rekstri sem stofnandi og framkvæmdastjóri innflutningsfyrirtækis, auk þess sem hann hefur frá árinu 2023 rekið eigið fyrirtæki í pípulögnum. Þar hefur hann meðal annars annast heildarhönnun og uppsetningu lagnakerfa við stærri byggingarframkvæmdir, þar á meðal stækkun hótels með fullbúnum hitaveitu-, neysluvatns- og frárennsliskerfum.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð býður Ólaf hjartanlega velkominn til starfa.
Ólafur hefur þegar hafið störf.