Rekstur Bláskógabyggðar í góðu jafnvægi

Fréttir 03.09.2026

Árshlutayfirlit Bláskógabyggðar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 (1. janúar til 30. júní) var lagt fram og kynnt á fundi sveitarstjórnar 2. september. Uppgjörið sýnir að rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi og er heildarniðurstaða A- og B-hluta nokkuð betri en forsendur fjárhagsáætlunar gerðu ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 105,8 m.kr. á tímabilinu, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 92,3 m.kr. rekstrarafgangi. Rekstur samstæðunnar er því um 13,5 m.kr. umfram áætlun.

Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 327,9 m.kr. Helstu fjárfestingar eru vegna endurbyggingar sundlaugar í Reykholti, framkvæmda hjá Bláskógaveitu, kaupa á Laugarásjörðinni og vegna gatnagerðar.

Á fundi sveitarstjórnar kom fram að heildarrekstur samstæðu Bláskógabyggðar sé í góðu jafnvægi eftir fyrstu sex mánuði ársins 2026 og að sjóðstreymi sveitarfélagsins var mjög sterkt á tímabilinu.

Árshlutayfirlit janúar til júní 2026.