Réttir á Íslandi

Fréttir 14.10.2026

Nýverið afhenti Anna Fjóla Gísladóttir Bláskógabyggð tvö eintök af nýútgefinni bók sinni Réttir á Íslandi, sem inniheldur myndir af um 700 réttum á Íslandi, ásamt upplýsingum um þær. Anna Fjóla og faðir hennar, Gísli B. Björnsson, eru höfundar ritsins og tók Anna Fjóla myndirnar sem prýða bókina. Bláskógabyggð styrkti útgáfu bókarinnar og færði Anna Fjóla sveitarfélaginu bækurnar í þakklætisskyni. Bláskógabyggð fagnar útgáfunni, enda eru réttir mikilvægur þáttur í menningu landsins og mikilvægt að varðveita upplýsingar um þær. Á myndinni eru Helgi Kjartansson, oddviti, og Anna Fjóla.