Samningur við bjsv. Biskupstungna
Fréttir
10.10.2025
Undirritaður hefur verið nýr samstarfssamningur milli Bláskógabyggðar og Björgunarsveitar Biskupstungna sem gildir frá 2025-2027. Samingurinn tekur til rekstrarstyrks sveitarfélagsins til björgunarsveitarinnar, framlags til flugeldasýningar, námskeiðshalds og framlags til rekstur fasteignar björgunarsveitarinnar. Að auki mun björgunarsveitin áfram annast gæslu í tengslum við Tungnaréttir.
Á myndinni eru Sigurjón Pétur Guðmundsson, gjaldkeri bjsv. Biskupstungna, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, Helgi Kjartansson, oddviti og Kristinn Bjarnason, formaður bjsv. Biskupstunga.