Skattaáform sem snerta Bláskógabyggð
Ríkisstjórn Íslands hefur boðað að lagt verði sérstakt náttúru- og innviðagjald á þrjá fjölsótta ferðamannastaði innan Bláskógabyggðar. Koma þessi áform til viðbótar boðaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur mótmælt þessum áformum og skilaði inn umsögnum um frumvörpin til fjárlaganefndar og atvinnuvegaráðuneytisins. Einnig hafa fulltrúar sveitarfélagsins átt tvo fundi með atvinnuvegaráðherra, annars vegar með fulltrúum ferðaþjónustunnar, og hins vegar með fulltrúum fleiri sveitarfélaga á svæðinu. Þá voru þessi mál tekin upp á fundi með þingmönnum kjördæmisins í þingmannaviku í byrjun október og á fundi sem Samtök ferðaþjónustunnar stóðu fyrir í sl viku. Helgi Kjartansson, oddviti, Valdís Smáradóttir, sveitarstjórnarfulltrúi, og Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, hafa ritað greinar um málin sem birst hafa á vefmiðlum. RÚV og Morgunblaðið hafa tekið viðtöl við sveitarstjóra. Á Samráðsgátt stjórnvalda má lesa fleiri umsagnir um frumvarpið um náttúru- og innviðagjald, m.a. frá ferðaþjónustuaðilum á svæðinu og frá einstaklingum sem láta málið til sín taka.
Hér eru hlekkir á umsagnir Bláskógabyggðar og greinar.
Umsögn um frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald.
Umsögn um frumvarp til fjárlaga.
Grein Helga Kjartanssonar, oddvita.