Skipulagsauglýsing
Slóð á auglýsingu með hlekk á skipulagsgögn: Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. | Skipulagsauglýsing birt dags. 4. júní 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
- Einiholt 3 L192608; Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting – 2604006
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. apríl 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Einiholts 3 L192608 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 4. júní 2026 með athugasemdarfresti til og með 17. júlí 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita