Snjómokstur, þéttbýliskjarnar - útboð

Fréttir 20.06.2025

Bláskógabyggð óskar eftir tilboði í snjómokstur og hálkuvarnir í þéttbýliskjörnum í Bláskógabyggð. Um er að ræða þrjú útboð. Reykholt, Laugarvatn og Laugarás. Með Laugarási eru nærliggjandi afleggjarar. Öll útboðin taka til þriggja ára.
Útboðsgögn fást afhent frá og með fimmtudegi 26. júní n.k. á skrifstofu
Bláskógabyggðar, eða með því að senda tölvupóst á netfangið
kristofer@blaskogabyggd.is
Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, 806 Selfoss,
fyrir kl. 09:00 þriðjudaginn 8. júlí n.k vegna Reykholts, fyrir kl. 09:15
þann sama dag vegna Laugarvatns og kl 9:30 vegna Laugaráss, en þá verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Nánari upplýsingar gefur Kristófer A. Tómasson, sviðsstjóri Framkvæmda- og
veitusviðs Bláskógabyggðar í síma 480 3000 og 860-4440 eða í tölvupósti á netfangið
kristofer@blaskogabyggd.is