Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf um skipulag- og lóðamál.
- Samskipti og bréfaskrif.
- Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
- Rýna og yfirfara skipulagsgögn.
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skipulags- og lóðamálum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu.
- Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, möguleiki er á fjarvinnu eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Jónsdóttir, – nanna@utu.is – 480-5550
Umsókn skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 20. október nk.