Staða skólastjóra við Bláskógaskóla Laugarvatni

Fréttir 26.02.2026

Bláskógabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Bláskógaskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur reynslu og þekkingu af skólastarfi. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á skólastarfi, skólaþróun, stjórnun og forystu og geta leitt framþróun í samræmi við stefnumótun sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunn- og leikskóla.
  • Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í sveitarfélaginu.
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og þjónustu skólans.
  • Ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Bera ábyrgð á og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög.
  • Samstarf við skólanefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn og aðra aðila skólasamfélagsins.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun á sviði kennslufræða, uppeldisfræða eða stjórnunar er kostur.
  • Færni til faglegrar forystu og til að leiða framsækna skólaþróun.
  • Framúrskarandi hæfni, lipurð og virðing í samskiptum, ásamt góðu orðspori.
  • Sjálfstæði í störfum, ríkt frumkvæði, jákvæðni og vilji til þátttöku í samstarfi.
  • Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er kostur, ásamt færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
  • Þekking og reynsla af mannauðsmálum er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Við Bláskógaskóla stunda að jafnaði 50-60 grunnskólanemendur nám, auk þess sem þar er rekin frístund fyrir nemendur í 1. til 4. bekk. Leikskóladeild er rekin í sama húsnæði og er mikið samstarf á milli leik- og grunnskóla, auk þess sem samstarf er við Reykholtsskóla.

Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir. Skólinn stendur í fögru og fjölbreyttu umhverfi Laugarvatns og er útinám stór þáttur í stefnu skólans. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og gleði.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna SÍ. Starfshlutfall er 100%. Umsókn fylgi kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari og framtíðarsýn umsækjanda varðandi þróun skólastarfs. Starfið hentar einstaklingum óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til 11. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, í síma 480 1900. Umsókn ásamt fylgigögnum skal send á netfangið asta@blaskogabyggd.is.