Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum
Fréttir
08.09.2026
Föstudaginn 11. september og laugardaginn 12. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.
Föstudaginn 11. sept
Biskupstungnabraut 35, milli Gullfoss og Geysis frá kl 11:30 til 13:30.
Skeiða- og Hrunamannavegur 30, við Gýgjarhól milli kl 14:00 og 15:30.
Einholtsvegur 358, frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl 16:00 fram á kvöld.
Laugardaginn 12. sept
Biskupstungnabraut 35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl 13:00 og fram eftir degi.
Einholtsvegur 358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl 13:00 og fram eftir degi.
Fjallskilanefnd Biskupstungna.