Taktu þátt í því að móta sögu Suðurlands er varðar framtíðaruppbyggingu!

Fréttir 12.10.2026

Taktu þátt í því að móta sögu Suðurlands er varðar framtíðaruppbyggingu!

Þann 6.-7. nóvember 2026 verður Horseday-höllin í Ölfusi vettvangur hátíðar atvinnulífsins sem enginn ætti að missa af!

Þetta er fyrsti heildstæði viðburður sunnlensks atvinnulífs, nýsköpunar og frumkvöðla!

Kastljósinu verður beint að kraftinum, hugmyndunum og tækifærunum sem búa á Suðurlandi og þeim fjölbreyttu lausnum sem eru að móta framtíð atvinnulífs og samfélags á svæðinu.

Hátíðin sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði, kynningar og tengslamyndun í lifandi og spennandi dagskrá þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög, stuðningsaðilar og almenningur koma saman.

Gestir fá tækifæri til að kynnast nýjum hugmyndum, hitta fólkið á bak við fyrirtækin og sjá hvernig nýsköpun verður til í raunverulegu samhengi í matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, orku, tækni, skapandi greinum og samfélagsþróun.

Á hátíðinni verður einnig kynnt nýsköpunarstefna Suðurlands, sem markar tímamót þar sem Suðurland verður fyrsti landshluti Íslands til að setja sér heildstæða stefnu um nýsköpun.

Taktu þátt í þessu með okkur og mótum sögu Suðurlands er varðar framtíðaruppbyggingu saman!

Kíktu á drög að dagskránni hér
Kíktu á upplýsingar fyrir sýnendur hér
Allar frekari upplýsingar má finna inná https://uppspretta.sass.is/is