Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju fer fram á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti og hefst hún mánudaginn 17. ágúst 2026.
Opnunartími skrifstofu sveitarfélagsins:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30 - 16:00, föstudaga kl. 8:30 - 12:30.
Einnig er hægt að kjósa hjá Sýslumanninum á Suðurlandi, Hörðuvöllum 1, Selfossi.
Opnunartímar á skrifstofu sýslumanns vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu:
17. - 21. ágúst, kl. 9:00 - 17:00.
Laugardaginn 22. ágúst, kl. 10:00 - 12:00.
24. ágúst - 27. ágúst, kl. 9:00 - 18:00.
28. ágúst, kl. 9:00 - 20:00.
Kjördag, 29. ágúst, kl. 11:00 - 15:00.
Kosningarétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem hafa kosningarétt til Alþingis og við forsetakjör, samkvæmt 3. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
Upplýsingar um kosningarétt og hvar kjósendur eiga að kjósa eru gefnar á síðunni www.thjodaratkvaedi.is