Útboð á slætti
Fréttir
10.03.2026
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Laugarvatn - Grassláttur
Verkið felur í sér grasslátt á Laugarvatni árin frá og með 2026 til og með 2029. Slá skal grasfleti fyrir Bláskógabyggð, samanber útboðslýsingu.
Helstu magntölur eru:
Grassláttur samtals 97.000 m2
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 11. mars 2026. Beiðnir um afhendingu útboðsgagna í verkið skulu sendar á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 10:30 fimmtudaginn 26. Mars 2026 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
F.h. Bláskógabyggðar
Kristófer Tómasson sviðsstjóri Framkvæmda- og veitusviðs Bláskógabyggðar.