Útboð Traustatún/Herutún
Útboð
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Laugarvatn
Traustatún - Herutún
Verklok eru 15.10.2026
Verkið felur í sér gerð hluta af nýrri götu Traustatúni og Herutún á Laugarvatni, Bláskógabyggð.
Verktaki skal jarðvegsskipta götustæðum samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, reisa ljósastaura, leggja ljósastaurastreng og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annara veitulagna.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 2.600 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 3.500 m³
Fráveitulagnir 740 m
Vatnsveitulagnir 350 m
Ljósastaurar 9 stk
Hitaveitulagnir 340 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 4. maí 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Kristófer hjá Bláskógabyggð með því að senda tölvupóst á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 föstudaginn 15. maí og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.