Viðbygging við íþróttamiðstöðina á Laugarvatni

Fréttir 30.01.2026

Undirritaður hefur verið samningur á milli Ungmennafélags Laugdæla og Bláskógabyggðar um að félagið taki að sér, í sjálfboðavinnu, að byggja hæð ofan á lægri byggingu/búningsklefa íþróttahússins á Laugarvatni. Nánar tiltekið munu aðilar innan UMFL annast vinnulið framkvæmdar sem felur í sér að koma upp skrokki hússins, þ.e. reisa burðarvirki, annast uppsetningu yleininga á veggi og þak ásamt ísetningu glugga. Bláskógabyggð leggur til fjármagn í efniskaup og hönnunarvinnu og ýmsa aðra þætti. Gert er ráð fyrir að verkið verði unnið sumarið 2026. Alls verður þessi nýja bygging rúmlega 800 fermetrar að stærð og mun bjóða upp á mikla möguleika hvað varðar aðstöðu fyrir félagsstarf og fleira. Í öðrum áfanga verksins verður innra skipulag ákveðið og rýmið hólfað niður.