Vígðalaug
Fréttir
22.02.2026
Síðustu vikur hefur dregið úr rennsli í Vígðulaug og komið hafa tímabil þar sem ekkert vatn hefur runnið um hana. Þekkt er að laugin hefur þornað upp áður í langvarndi þurrkatíð, eins og verið hefur nánast síðan um síðustu jól. Einnig hefur komið í ljós að það er samspil á milli hversins við gufubað Fontana og Vígðulaugar og framkvæmdir Fontana við endurnýjun steyptrar þróar við gufubaðshverinn hafa haft áhrif á vatnsstöðu. Dæla hefur þurft vatni frá hvernum og dregur þá úr rennsli í Vígðulaug. Þegar dælingu er hætt seytlar vatn á ný um Vígðulaug. Þegar ný þró við gufubaðshverinn verður tilbúin kemst sama jafnvægi á vatnsstöðuna og áður. Þar sem Vígðalaug er friðlýst er hún í umsjá Minjastofnunar og hefur stofnunin verið upplýst um málið.