Virðisaukaskattur af baðlónum
Á 410. fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
|
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn þeim áformum ríkisstjórnarinnar sem kynnt hafa verið um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá byrjun árs 2027. Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa látið í ljós um að slík hækkun muni vega þungt í samfélögum á landsbyggðinni. Sveitarstjórn hvetur stjórnvöld til að endurskoða áformin og falla frá þeim, enda eru þau ekki í samræmi við áður yfirlýst áform ríkisstjórnarinnar um að hækka ekki virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Í Bláskógabyggð eru tvö baðlón sem hafa staðið fyrir miklum fjárfestingum á síðustu misserum og fela áform ríkisstjórnarinnar í sér gerbreyttar rekstrarforsendur. Umrædd baðlón eru mikilvægur hluti ferðaþjónustunnar, auk þess sem sveitarstjórn vill einnig vekja athygli á því að gestir baðlóna eru að stórum hluta Íslendingar, heimamenn og gestir, og mun hækkunin því einnig fela í sér auknar álögur á almenning í landinu. Uppbygging afþreyingar fyrir ferðamenn á landsbyggðinni er mjög mikilvæg og liður í því að dreifa tekjum af henni með jafnari hætti um landið. Verði áform ríkisstjórnarinnar að veruleika mun það hafa mjög neikvæð áhrif í för með sér. |