Virkjun borholu á Laugarvatni
Fréttir
27.11.2026
Hafin er vinna við að tengja hitaveituholuna á Laugarvatni við hitaveitukerfið. Ákveðið hefur verið að tengja borholuna til bráðabirgða við kerfið og er allt kapp lagt á að vinna verkið eins hratt og vel eða áður en harðasti veturinn gengur í garð. Lögð verður lögn frá borholunni sem er fyrir framan Menntaskólann í átt að Hérðasskólanum og þaðan niður á gamla malarvöllinn. Settur verður upp dælugámur og gufuskilja milli skrifstofuhúsnæðis UTU og Traustatúns. Í vetur verður svo unnið að endanlegri hönnun á veitunni.
Það er krefjandi verkefni að hanna hitaveitu sem staðsett er inn í miðju þorpi en taka þarf tillit til margra þátt við slíka vinnu. Þess má geta að hitinn í holunni sem er við ML er um 116 gráður. Vonast er til að þessar framkvæmdir valdi sem minnstri truflun fyrir íbúa og gesti Laugarvatns. Óhjákvæmilega valda framkvæmdir sem þessar ýmsu raski en reynt verður eftir fremsta megni að halda þeim í algjöru lágmarki.