Framkvæmda- og veitunefnd

74. fundur 27. janúar 2026 kl. 13:00 - 14:10 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Stefanía Hákonardóttir Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Axel Sæland Varamaður
    Aðalmaður: Jón Forni Snæbjörnsson
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Benedikt Skúlason Veitustjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Staðsetning dælustöðvar, lagnaleiðir
Farið var yfir mögulegar sviðsmyndir að lagnaleiðum og staðsetningu á dælustöð. Samþykkt að vinna frekari gögn.

2.Söfnunartankur fyrir kalt vatn við Laugarvatn

2509017

Kaldavatnsöflun við Laugarvatn, staða
Tankar fyrir miðlun á köldu vatni eru komnir í framleiðslu. Áætlaður framleiðslutími er 2-3 mánuðir. Vinna við að setja upp plan fyrir tankana hefst á næstu vikum. Áætlað er að unnt verði að koma tönkunum fyrir og tengja í vor.

3.Ljósleiðaravæðing Bláskógaveitu

2503037

Staða undirbúnings framkvæmda
Stefnt er að fundi með verkefnastjóra á næstu dögum vegna áfangaskiptingar og verðkönnunar/útboðs.

4.Ljósleiðaratenging Borgarás

2601044

Undirbúningur lagningar ljósleiðara í Borgarás, staða
Lagður verður ljósleiðari í Borgarás á árinu. Sviðsstjóra er falið að undirbúa verðkönnun/útboð.

5.Gatnagerð Kotstún

2601045

Verðkönnun vegna gatnagerðar við Kotstún
Sviðsstjóra er falið að senda út verðkönnun vegna Kotstúns og Fálkamýrar.

6.Gatnagerð Fálkamýri

2601046

Verðkönnun vegna gatnagerðar við Fálkamýri
Í tengslum við endurbætur á Laugarvatnsvegi mun Vegagerðin loka stút að hesthúsasvæðinu, enda er núverandi staðsetning ekki í samræmi við skipulag. Samþykkt er að uppfæra verðkönunargögn þannig að miðað verði við aðkeyrslu eins og gert er ráð fyrir í skipulagi. Verðkönnun verði send út að því loknu, samhliða verðkönnun fyrir Kotstún.

7.Sláttuútboð, Laugarvatn

2601047

Tillaga um að sláttur á Laugarvatni verði boðinn út.
Framkvæmda- og veitunefnd felur sviðsstjóra að bjóða út slátt og hirðingu á Laugarvatni. Heimild til framlengingar á núverandi samningi verði ekki nýtt.

8.Starfsmannahald Bláskógaveitu

2601049

Ráðning veitustjóra
Fyrir liggur að veitustjóri láti senn af störfum. Framkvæmda- og veitunefnd felur sviðsstjóra að auglýsa stöðu veitustjóra lausa til umsóknar.

Fundi slitið - kl. 14:10.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?