Framkvæmda- og veitunefnd

77. fundur 30. mars 2026 kl. 09:00 - 10:30 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Stefanía Hákonardóttir Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Axel Sæland Varamaður
    Aðalmaður: Jón Forni Snæbjörnsson
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Benedikt Skúlason Veitustjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Umsókn um heimlögn, Hamarsholt 4, heitt og kalt

2603039

Umsókn um heimlögn
Umsókn samþykkt.

2.Umsókn um heimlögn, Hverabraut 1, heitt og kalt

2603040

Umsókn um heimlögn vegna Fontana, Hverabraut 1, Laugarvatni
Frestað þar sem upplýsingar vantar um umsótt magn af heitu og köldu vatni í umsóknina.

3.Lóðarumsókn Langholtsvegur 4, Laugarási

2411030

Umsókn um lóðina Langholtsveg 4, Laugarási, vísað til framkvæmda- og veitunefndar á 404. fundi framkvæmda- og veitunefndar.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að lóðirnar Langholtsvegur 2 og 4 verði auglýstar lausar til umsóknar, með fyrirvara þó um möguleika á afhendingu á vatni til stórfelldrar garðyrkju.

4.Tillaga um opnunartíma gámasvæða

2603031

Tillaga umhverfisnefndar um opnunartíma gámasvæða.
Framkvæmda- og veitunefnd þakkar umhverfisnefnd fyrir tillögurnar. Sviðsstjóra er falið að rýna þær frekar og taka saman upplýsingar um sorpmagn.

5.Fráveita frá Fontana, rotþró og lagnir

2505013

Upplýsingar frá Fontana um magn grávatns.
Lagt fram.

6.Skipulag snjómoksturs

2603032

Vöktun á stöðu á vegum með tilliti til snjómoksturs.
Umræða varð um málið.

7.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Lagnaleið frá borholu á Laugarvatni.

Grunnteikning dæluhúss.
Gögnin voru lögð fram. Unnið er áfram að hönnun og undirbúningi framkvæmda.

8.Verkfundir vegna sundlaugar í Reykholti

2505017

10. fundur haldinn 26.02.2026
Fundargerðin var lögð fram.

9.Ráðning starfsmanns framkvæmda- og veitusviðs - húsvarðar

2602031

Upplýsingar um ráðningarferli.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Umsóknarfrestur er runninn út og ráðningarviðtöl munu fara fram eftir páska.

10.Ráðning verkstjóra veitna

2603034

Ráðning verkstjóra veitna, upplýsingar um ráðningarferli.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Ráðningarfrestur er runninn út. Ráðningarviðtöl fara fram eftir páska.

11.Ráðning starfsmanns veitna

2603035

Ráðning starfsmanns veitna. Upplýsingar um ráðningarferli.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Ráðningarfrestur er runninn út. Ráðningarviðtöl fara fram eftir páska.

12.Ráðning flokkstjóra vinnuskóla 2026

2603036

Ráðning flokkstjóra. Upplýsingar um ráðningarferli.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Staðan hefur verið auglýst laus til umsóknar og enn hafa ekki borist umsóknir.

13.Sláttur og hirðing Laugarvatn, 2026-2029

2601047

Útboð á slætti og hirðingu á Laugarvatni. Tilboð.
Yfirlit yfir framkomin tilboð var lagt fram. Sviðsstjóra er falið að kalla eftir gögnum um hæfi lægstbjóðanda, Símonar Gests Ragnarssonar.

14.Útboð yfirborðsfrágangs Borgarrimi

2603037

Tilboð í malbikun, Borgarrimi
Yfirlit yfir tilboðin var lagt fram. Sviðsstjóra er falið að kalla eftir gögnum um hæfi lægstbjóðanda, Gröfutækni ehf.

15.Skurðir meðfram vegum í Laugarási

2403045

Fyrirspurn Hagsmunafélags Laugaráss um lokun skurða í Laugarási, vísað til framkvæmda- og veitunefndar á 406. fundi sveitarstjórnar.
Áætlað er að unnið verði út frá gatnamótum Skógargötu og Ferjuvegar að frágangi skurða og að haldið verði áfram með verkið í sumar.

16.Endurbætur á gatnamótum Skálholtsvegar og Holtagötu

2503034

Fyrirspurn Hagsmunafélags Laugaráss um framkvæmdir á gatnamótum Holtagötu og Skálholtsvegar. Vísað til framkvæmda- og veitunefndar á 406. fundi sveitarstjórnar.
Frágangi gatnamótanna verður lokið í vor, þegar frost fer úr jörðu.

17.Göngu- og hjólastígar

2603024

Tillaga um göngu- og hjólastíga. Vísað til framkvæmda- og veitunefndar á 406. fundi sveitarstjórnar.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að málið verði tekið upp við næstu endurskoðun aðalskipulags og í framhaldinu teknar ákvarðanir um áfangaskiptingu.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?