Framkvæmda- og veitunefnd
Dagskrá
1.Ráðning veitustjóra
2601049
Tillaga um ráðningu veitustjóra.
Sveitarstjóri fór yfir ráðningarferilinn. Staðan var auglýst í febrúar. Sjö umsóknir bárust um starfið og var fimm umsækjendum boðið í viðtal. Tvær umsóknir voru dregnar til baka. Viðtöl önnuðust Kristófer A. Tómasson, sviðsstjóri, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri og Geirlaug Jóhannsdóttir, frá Hagvangi. Benedikt Skúlason, veitustjóri, tók þátt í seinni umferð viðtala sem tveir umsækjenda mættu í. Yfirlit sveitarstjóra varðandi ferilinn og hæfni umsækjenda fylgdi gögnum málsins, ásamt umsóknum og gögnum um viðtöl og umsagnir. Framkvæmda- og veitunefnd fór vandlega yfir fyrirliggjandi gögn. Sveitarstjóri fór yfir ráðningarferlið, viðtöl, yfirferð gagna og könnun umsagna og þar með almenna hæfni umsækjenda til að gegna stöðunni. Eftir að hafa metið ítarlega fyrirliggjandi gögn er það niðurstaða framkvæmda- og veitunefndar að leggja til við sveitarstjórn að Ólafi Jósef Ólafssyni verði boðið starf veitustjóra.
2.Starfsmannahald Bláskógaveitu
2602045
Umræða um starfsmannahald Bláskógaveitu
Farið var yfir stöðuna. Aðstoðarmaður veitustjóra hefur sagt starfi sínu lausu, ráðið verður í stöðuna að nýju. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að bætt verði við einu stöðugildi í Bláskógaveitu, þannig að starfsmenn verði þrír.
Fundi slitið - kl. 14:30.