Framkvæmda- og veitunefnd
Dagskrá
1.Nýtingarleyfi fyrir borholu RH-07
2502031
Bréf Skipulagsstofnunar, dags. 17.02.2026, um matsskyldu jarðhitanýtingar í Reykholti í Bláskógabyggð.
Bréfið var lagt fram. Þar kemur fram að ekki þurfi að láta framkvæma umhverfismat vegna jarðhitanýtingar í Reykholti.
2.Virkjun borholu á Laugarvatni
2503035
Skýrsla ÍSOR um áhrifamat jarðhitavinnslu á grunnvatnshlotið Laugardal.
Áhrifamatið var lagt fram.
3.Virkjun borholu á Laugarvatni
2503035
Staðsetning dælustöðvar, lagnaleiðir
Rætt var um staðsetningu dælustöðvar og lagnaleiðir. Skipulag fyrir dæluhús hefur verið afgreitt og leggur framkvæmda- og veitunefnd áherslu á að vandað verði til hönnunar og frágangs húss og umhverfis. Þegar drög að útliti liggja fyrir verði tillaga kynnt.
4.Útboð sundlaugar í Reykholti
2505017
Fundargerð 8. verkfundar frá 26.01.2026
Fundargerð 9. verkfundar frá 11.02.2026
Fundargerð 9. verkfundar frá 11.02.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
5.Gatnagerð Kotstún
2601045
Opnun tilboða í gatnagerð (Fálkamýri/Kotstún). Tilboð opnuð 18.02.2026.
Tilboð í gatnagerð Fálkamýri og Kotstún liggja fyrir. Farið verður yfir tilboðin.
6.Gatnagerð Fálkamýri
2601046
Opnun tilboða í gatnagerð (Kotstún/Fálkamýri). Tilboð opnuð 18.02.2026.
Tilboð í gatnagerð Fálkamýri og Kotstún liggja fyrir. Farið verður yfir tilboðin.
7.Kaup Fontana á köldu vatni
2506043
Vatnsþörf Fontana
Farið var yfir vatnsþörf Fontana (kalt vatn). Kallað verður eftir umsóknum um stækkun á heimtaugum.
8.Söfnunartankur fyrir kalt vatn við Laugarvatn
2509017
Staða undirbúnings
Farið var yfir stöðu undirbúnings að því að setja upp safntanka fyrir kalt vatn við vatnslind.
9.Aukin heitavatnsnotkun GufuFontana
2312022
Framkvæmdir og áhrif á hveravatn
Tímabundin truflun varð á afhendingu vatns hjá Bláskógaveitu vegna framkvæmda Fontana. Áhersla er lögð á gott samráð og upplýsingagjöf.
10.Lóðarleigusamningur um Hverabraut 1, Laugarvatni
2602027
Lóðarleigusamningur vegna Hverabrautar 1, hver við gufubað
Samningar ríkisins við Fontana eru lagðir fram. Bláskógabyggð er nú eigandi landsins og Bláskógaveita með umráð jarðhitaréttinda. Unnið er að því að gera nýjan samning við Fontana varðandi hver við gufubað og nýtingu jarðhitaréttinda Bláskógaveitu.
11.Framlög til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks
2602026
Erindi Bergrisans bs, dags. 10.02.2026, þar sem vakin er athygli á möguleika á að fá framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna bætts aðgengis fyrir fatlað fólk.
Lagt fram til kynningar.
12.Starfsmannahald Bláskógaveitu
2601049
Ráðning veitustjóra, staða
Alls bárust sjö umsóknir um stöðu veitustjóra. Unnið verður að ráðningu næstu daga.
13.Gjaldskrá Bláskógaveitu athugasemdir varðandi lágmarksgjald
2501075
Bréf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, dags. 26.01.2026, vegna kvörtunar Þrastar Freys Gylfasonar varðandi framkvæmd Bláskógaveitu á ákvæði í gjaldskrá Bláskógaveitu um lágmarksnotkun sumarhúsa.
Lagt fram til kynningar.
14.Meðhöndlun raftækja á söfnunarstöðvum
2602025
Erindi Úrvinnslusjóðs, dags. 11.02.2026, varðandi meðhöndlun raftækja.
Lagt fram til kynningar.
15.Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ
2602024
Erindi Náttúruhamfaratryggingar Íslands, dags. 12.02.2026, þar sem athygli eigenda opinberra mannvirkja er vakin á skyldu til að skila uppfærslu og skráningu nýrra mannvirkja.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:15.