Framkvæmda- og veitunefnd

82. fundur 13. ágúst 2026 kl. 08:30 - 10:40 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Óli Björn Finnsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
  • Ólafur Jósef Ólafsson Veitustjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Umsókn um stækkun heimlagna, heitt og kalt, Ferjuvegur 7 (Engi)

2606037

Umsókn um stækkun heimlagna að Höfðavegi 1 og Ferjuvegi 7.
Sótt er um heimlögn fyrir heitt og kalt vatn vegna tveggja húsa (stækkun). Afgreiðslu er frestað og veitustjóra er falið að ræða við umsækjanda.

2.Umsókn um heimlögn, kalt vatn Myrkholt

2509016

Erindi Lofts Jónassonar, dags. 06.07.2026, vegna kaldavatnstengingar Myrkholts.
Lögð var fram beiðni um að fá að tengja fjögur frístundahús og þrjár óbyggðar lóðir við vatnsveitu gegn því að vatnslögn á svæðinu komi sem greiðsla fyrir tengingu. Sviðsstjóra var falið að gera drög að samningi um yfirtöku lagnanna. Teikningar af lagnaleiðum verði hluti af samningnum.

3.Heimlögn vatnsveitu (kalt) Þórðarbraut 10

2608009

Umsókn, dags. 06.07.2026, um tengingu á köldu vatni að Þórðarbraut 10.
Lögð var fram umsókn um tengingu 15 fermetra aðstöðuhúss á lóðinni Þórðarbraut 10 við vatnsveitu. Erindinu er hafnað þar sem ekkert mannvirki er skráð á lóðinni.

4.Umsókn um heimlögn, kalt vatn, Höfði I og Höfði II

2508001

Kaldavatnstenging að Höfða, staða mála.
Framkvæmda- og veitunefnd samþykkir tenginguna, enda greiði umsækjendur allan kostnað við tenginguna.

5.Umsókn um meira heitt vatn Lyngbraut 3

2301036

Erindi Guðmundar S. Zebits, dags. 07.07.2026, varðandi aukningu á heitu vatni vegna Lyngbrautar 1 og 3.
Framkvæmda- og veitunefnd tekur jákvætt í erindið. Sviðsstjóra og veitustjóra er falið að ræða við umsækjanda.

6.Umsókn um aukið vatnsmagn (kalt vatn) Kvistabær

2608008

Erindi Guðmundar S. Zebits, dags. 07.07.2026, varðandi möguleika á auknu vatnsmagni til Kvistabæjar að Lyngbraut 1 og 3.
Sviðsstjóra og veitustjóra er falið að ræða við umsækjanda.

7.Fráveitutengingar við Lyngbraut

2608007

Erindi Guðmundar S. Zebits, dags. 07.07.2026, varðandi fráveitutengingu Kvistabæjar. Tölvupóstur Knúts Ármann, dags. sama dag, varðandi fráveitutengingar við Lyngbraut.
Framkvæmda- og veitunefnd felur sviðsstjóra að kanna hvaða möguleikar eru fyrir hendi varðandi fráveitu á svæðinu.

8.Tækjakaup Bláskógaveitu

2608014

Kaup Bláskógaveitu á liðlétting eða skotbómulyftara.
Veitustjóri gerði grein fyrir beiðni um kaup á tæki fyrir veituna. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að keypt verði minni gerð af skotbómulyftara. Gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna kaupanna, kostnaður er áætlaður um 12,5 millj.kr.

9.Ráðning verkstjóra veitna

2603034

Ráðning verkstjóra veitna.
Staðan var auglýst laus til umsóknar fyrr á árinu. Sviðsstjóri gerði grein fyrir ráðningarferlinu og að því væri að ljúka.

10.Ráðning starfsmanns veitna

2603035

Ráðning starfsmanns veitna/starfsmanns í áhaldahús.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu málsins. Ráðið var tímabundið í starfið í sumar.

11.Gatnagerð Kotstún og Fálkamýri

2601046

3. verkfundur haldinn 30.06.2026
Fundargerð verkfundar var lögð fram.

12.Gatnagerð Traustatún, 2. áfangi

2511022

1. verkfundur haldinn 08.07.2026
Fundargerð verkfundar var lögð fram.

13.Útboð yfirborðsfrágangs Borgarrimi

2603037

1. verkfundur haldinn 08.07.2026
Fundargerð verkfundar var lögð fram.

14.Endurbætur á gatnamótum Skálholtsvegar og Holtagötu

2503034

Endurnýjun lagna og gatnatenging (Holtagata/Skálholtsvegur). Staða verks.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu verksins. Lokið er við frágang lagna og frágangur og malbikun er áætluð í næstu viku.

15.Gangstétt og lýsing Vesturbyggð

2608012

Gangstétt og lýsing, Vesturbyggð, staða verks.
Ketilbjörn ehf annast verkið. Verktaki í kantsteypu er væntanlegur eftir tvær vikur og frágangur gangstéttar í framhaldinu.

16.Gangstétt við Háholt

2509020

Gangstétt við Háholt, staða verks.
Véldurgur er með verkið. Kantur verður steyptur eftir 2 vikur.

17.Gangstétt við Kistuholt

2608011

Gangstétt við Kistuholt, staða verks.
Verktaki er Viðhald og dráttur ehf. Verkið er í byrjunarfasa og verður kantur steyptur eftir um tvær vikur samhliða öðrum verkum.

18.Gangstétt við Skólatún

2608013

Gangstétt við Skólatún, staða verks.
Undirbúningi fyrir malbikun er lokið og malbikað verður fyrir haustið.

19.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Virkjun borholu, bygging dæluhúss, staða verks.
Farið var yfir stöðuna.

20.Nýtingarleyfi fyrir borholu RH-07

2502031

Nýtingarleyfisumsókn, staða mála.
Farið var yfir skilyrði sem Náttúruverndarstofnun leggur til að gerð verði fyrir útgáfu nýtingarleyfis. Framkvæmda- og veitunefnd gerir ekki athugasemd við skilyrðin.

21.Virkjun borholu í Reykholti RH 07

2501063

Dæluhús Reykholti, staða verks.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu málsins.

22.Upptekt borholudælu Reykholti

2606009

Upptekt borholudælu í RH 04. Staða verks.
Veitustjóri fór yfir verkefnið. Athugun á dælunni verður gerð í næstu viku og í framhaldinu metið hvort farið verði í upptektina í haust eða næsta sumar.

23.Söfnunartankur fyrir kalt vatn við Laugarvatn

2509017

Frágangur tanka við vatnsból. Staða verks.
Veitustjóri fór yfir verkefnið. Búið er að koma tveimur tönkum fyrir og verða þeir tengdir á mánudaginn.

24.Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026

2604027

Skýrsla vegna baðvatnssýnatöku, sundlaug Laugarvatni.
Skýrslan var lögð fram.

25.Vöktun Laugarvatns

2604028

Minnisblað ReSource, dags. 16.06.2026, um sýnatöku úr Laugarvatni.
Minnisblaðið var lagt fram.

26.Útboð sundlaugar í Reykholti

2505017

18. verkfundur haldinn 23.06.2026

19. verkfundur haldinn 06.07.2026

20. verkfundur haldinn 20.07.2026
Fundargerðir verkfunda voru lagðar fram.

27.Viðbygging við íþróttahúsið á Laugarvatni

2501065

Bygging hæðar ofan á lægri byggingu íþróttahússins á Laugarvatni, staða mála.
Áætlað er að framleiðslu eininga ljúki í september/október. Samið verður við Pálmatré ehf, sem annast framkvæmdina, um þá verkliði sem snúa að sveitarfélaginu.

28.Viðhald búningsklefa í íþróttahúsinu á Laugarvatni

2604026

Viðhald búningsklefa, staða verks.
Helena Björgvinsdóttir hjá VA arkitektum mun aðstoða við efnisval og útfærslur. Fundur er fyrirhugaður á föstudaginn.

29.Breytingar á innra skipulagi leikskólans Bláskóga Gullkista

2605001

Breytingar á innra skipulagu og viðhald, staða verks.
Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu verksins. Ný fatahólf verða ekki komin fyrr en í október. Að öðru leyti er verkið langt komið.

30.Lausar kennslustofur við Bláskógaskóla

2606004

Undirbúningur vegna lausra kennslustofa við Bláskógaskóla, staða verks.
Íshnit ehf hefur annast jarðvegsskipti og undirbúning tenginga. Einingarnar eru væntanlegar í næstu viku.

31.Lóðafrágangur UTU

2209023

Lóðarfrágangur við UTU.
Sviðsstjóri fór yfir málið.

32.Fjarskiptasamband við Hlöðuvallaveg

2608010

Erindi formanns svæðisstjórnar björgunarsveita á svæði 3, dags. 04.07.2026, varðandi fjarskiptasamband við Hlöðuvallaveg.
Erindið var lagt fram.

33.Ærslabelgur á Laugarvatni

2511047

Uppsetning ærslabelgs á Laugarvatni, staða verks.
Véldurgur ehf hefur lokið jarðvinnu vegna ærslabelgsins, en sá þáttur var á hendi sveitarfélagsins.

34.Ræsi fyrir reiðleið við Laugarvatn

2606003

Ræsi fyrir reiðleið við Laugarvatn, staða verks.
Veitustjóri fór yfir stöðuna, Íshnit mun færa hitaveitulögn vegna ræsisins.

35.Vatnslögn að sumarhúsi í landi Brúar

1810058

Kaldavatnslögn að sumarhúsi í landi Brúar, staða verks.
Verktaki var Viðhald og dráttur ehf, verkinu er lokið.

36.Kaldavatnsveita í sumarhúsabyggð í landi Fells (Ásar)

2505047

Vatnsþrýstingur í sumarhúsabyggð í landi Fells.
Veitustjóri fór yfir stöðu málsins. Samþykki liggur fyrir vegna vatnslagnar að þeim húsum þar sem þrýsingur er lítill.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?