Framkvæmda- og veitunefnd

81. fundur 18. júní 2026 kl. 15:00 - 17:15 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Óli Björn Finnsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
  • Ólafur Jósef Ólafsson Veitustjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Siðareglur kjörinna fulltrúa

2605031

Siðareglur kjörinna fulltrúa, samþykktar af sveitarstjórn
Siðareglurnar voru lagðar fram til kynningar.

2.Erindisbréf framkvæmda- og veitunefndar

2004010

Erindisbréf framkvæmda- og veitunefndar
Erindisbréf nefndarinnar var lagt fram. Erindisbréfið verður endurskoða samhliða breytingum á skipan nefndarinnar.

3.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Fundargerðir hönnunarfunda:

3. fundur 13.03.2026

4. fundur 05.06.2026



Fundargerðirnar voru lagðar fram. Einnig var lagt fram minnisblað Eflu, verkfræðistofu, vegna byggingar dæluhúss við borholuna.
Farið var yfir stöðu verksins. Hönnun lagnaleiðar samhliða hönnun Garðsstígs er á lokastigi. Ráðist verður í verðkönnun í framhaldinu. Lagnaefni hitaveitu er tilbúið til afhendingar. Borholudæla er í pöntun ásamt dælum í dæluhús.
Í minnisblaði Eflu eru tilgreindar þrjár útfærslur á dæluhúsi. Framkvæmda- og veitunefnd vísar málinu til sveitarstjórnar.

4.Virkjun borholu í Reykholti RH 07

2501063

Virkjun borholu í Reykholti, staða verks. Bygging dæluhúss og tengingar.
Veitustjóri og sviðsstjóri fóru yfir stöðu verksins. Talsverðar tafir hafa orðið á afhendingu dæluhúss og efni sem hefur borist er amk að hluta ekki rétt afgreitt. Leitað verður til söluaðila innanlands varðandi efni í stað þess sem vantar eða þess sem ekki passar.
Nýtingarleyfisumsókn er til meðferðar hjá Umhverfis- og orkustofnun.

5.Upptekt borholudælu Reykholti

2606009

Upptekt borholudælu í holu RH-04 (við Reykholtsskóla). Veitustjóri fer yfir málið.
Veitustjóri gerði grein fyrir nauðsyn þess að taka upp borholudælu í holu RH-04. Vinna þarf verkið á meðan grunnskólinn er í sumarleyfi og er undirbúningur hafinn.

6.Söfnunartankar fyrir kalt vatn við Laugarvatn

2509017

Frágangur tanka við vatnsból og tenging, staða verks
Veitustjóri gerði grein fyrir uppsetningu miðlunartanka við vatnsból á Laugarvatni. Tveimur tönkum hefur verið komið fyrir og er unnt að koma 2-3 til viðbótar fyrir á plani sem útbúið var, verði þörf á því.

7.Vatnslögn að sumarhúsi í landi Brúar

1810058

Kaldavatnslögn að sumarhúsi í landi Brúar, staða verks.
Sviðsstjóri gerði grein fyrir því að framkvæmdir við verkið væru hafnar á grundvelli tilboðs sem samþykkt var á síðasta ári. Líklegt er að kostnaður verði lægri en gert var ráð fyrir þar sem heppilegri lagnaleið liggur fyrir.

8.Ljósleiðaravæðing Bláskógaveitu

2503037

Tilboð í verkið Samtenging á veitumannvirkjum og fleiri mannvirkjum í Bláskógabyggð 2026
Sviðsstjóri fór yfir framkomin tilboð og viðræður við lægstbjóðanda, Véldurg ehf. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði Véldurgs ehf verði tekið. Tilboðið er að fjárhæð kr. 16.413.260, kostnaðaráætlun nam kr. 22.251.800.

9.Ljósleiðaratenging Borgarás

2601044

Tilboð í verkið Samtenging á veitumannvirkjum og fleiri mannvirkjum í Bláskógabyggð 2026, sjá 8. lið
Sjá afgreiðslu á 8. lið.

10.Traustatún, 2. áfangi

2511022

Tilboð í verkið Traustatún-Herutún.
Fundargerð opnunarfundar liggur fyrir. Einnig er lagt fram minnisblað Lögmanna Suðurlandi um hæfi lægstbjóðanda, Íshnits ehf. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði Íshnits ehf verði vísað frá. Framvkædma- og veitunefnd samþykkir að hæfi Ketilbjörns ehf verði kannað, en fyrirtækið átti næstlægsta boð.

11.Gatnagerð Kotstún og Fálkamýri

2601045

Fundargerð 1. verkfundar 19.05.2026

Fundargerð 2. verkfundar 02.06.2026
Fundargerðir verkfunda voru lagðar fram.

12.Lausar kennslustofur við Bláskógaskóla

2606004

Tilboð í sölu eða leigu á kennslustofu til að setja við Bláskógaskóla.
Lagt var fram tilboð. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að málið verði unnið áfram.

13.Framkvæmdir við sundlaug í Reykholti

2505017

Fundargerðir verkfunda:

13. fundur haldinn 13.04.2026

14. fundur haldinn 27.04.2026

15. fundur haldinn 11.05.2026

16. fundur haldinn 02.06.2026

17. fundur haldinn 08.06.2026
Fundargerðir verkfunda voru lagðar fram.

14.Viðhald búningsklefa í íþróttahúsinu á Laugarvatni

2604026

Upplýsingar frá sviðsstjóra um undirbúning verks
Sviðsstjóri og forstöðumaður íþróttamannvirkja hafa skoðað búningsklefa í öðrum sveitarfélögum og meta hvaða leið sé æskilegt að fara við endurnýjun búningsklefanna í íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni. Til stendur að skoða fleiri staði.

15.Ræsi fyrir reiðleið við Laugarvatn

2606003

Erindi Vegagerðarinnar, dags. 12.06.2026, þar sem óskað er eftir aðkomu Bláskógabyggðar að gerð ræsis undir Laugarvatnsveg.
Erindi Vegagerðarinnar var lagt fram. Þar kemur fram að Vegagerðin hafi takmarkað fjármagn til að gera ræsi undir vegi, líkt og æskilegt væri að gera við fyrirhugað hesthúsahverfi á Laugarvatni. Leggur Vegagerðin til að sveitarfélagið taki á sig efniskostnað en Vegagerðin greiði vinnulið verksins. Efniskostnaður er áætlaður um 7 millj.kr. Framkvæmda- og veitunefnd telur mikilvægt að reiðleið verði undir veginn á umræddum stað. Nefndin vísar erindinu til sveitarstjórnar.

16.Viðhaldsstjórnunarkerfi

2606010

Tilboð í viðhaldsstjórnunarkerfi
Lögð voru fram tvö tilboð í viðhaldsstjórnunarkerfi sem myndu nýtast Bláskógabyggð og Bláskógaveitu. Veitustjóri gerði grein fyrir málinu.

17.Lóðarfrágangur að Hverabraut 6 (UTU)

2209023

Lóðarfrágangur við hús UTU, upplýsingar frá sviðsstjóra.
Lokafrágangur lóðar við UTU er á áætlun ársins. Sviðsstjóri gerði grein fyrir því að lóðin verður þökulögð og sett lág girðing.

18.Skýli við rúgbrauðspott í Reykholti

2606005

Erindi Sigrúnar Ernu Perludóttur um að sett verði upp skýli við rúgbrauðspott við hverinn í Reykholti.
Erindi Sigrúnar Ernu var lagt fram. Veitustjóra er falið að ræða við umsækjanda.

19.Forgangsröðun í gatna og göngustígagerð 2025-2028

2412008

Yfirlit yfir helstu verkefni
Farið var yfir yfirlit yfir helstu verkefni sem eru framundan hvað varðar frágang og klæðningu malargatna og lagningu göngustíga. Forgangsröðun sem samþykkt var samhliða fjárhagsáætlun og tekur til áranna 2026-2028 var yfirfarin.

20.Ástandsskoðun MIT á Íslandi á skólamannvirkjum

2606008

Skýrslur um ástandsskoðun:

Leikskólinn Álfaborg

Reykholtsskóli

Bláskógaskóli
Lagðar voru fram skýrslur um ástandsskoðun skólamannvirkja Bláskógabyggðar. Nokkrar ábendingar koma fram um raka og verður unnið að úrbótum. Sviðsstjóra er falið að vinna að þeim verkefnum sem tilgreind eru í skýrslunum.

21.Frisbívöllur á Laugarvatni

2606006

Staðsetning frisbívallar á Laugarvatni.
Erindi verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags/íþróttafulltrúa var lagt fram. Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?