Framkvæmda- og veitunefnd

83. fundur 04. september 2026 kl. 08:30 - 10:45 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Óli Björn Finnsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
  • Ólafur Jósef Ólafsson Veitustjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Umsókn um heimlögn heitt í ný gróðurhús í Gufuhlíð

2606017

Umsókn um heimlögn hitaveitu í gróðurhús.
Framkvæmda- og veitunefnd samþykkir stækkun heimlagnar, afhending á auknu vatnsmagni verður þegar nýja borholan hefur verið tengd með varanlegri tengingu. Veitustjóra og sviðsstjóra er falið að útfæra viðbótarvatnsmagn með umsækjanda.

2.Umsókn um meira heitt vatn Lyngbraut 3

2301036

Sviðsstjóri fer yfir málið. Áður á dagskrá á 82. fundi.
Sviðsstjóri gerði grein fyrir viðræðum við umsækjanda. Unnt verður að afhenda meira af heitu vatni þegar nýja borholan hefur verið tengd varanlega.

3.Umsókn um aukið vatnsmagn (kalt vatn) Kvistabær

2608008

Sviðsstjóri fer yfir málið. Áður á dagskrá á 82. fundi.
Sviðsstjóri gerði grein fyrir viðræðum við umsækjanda. Lítill þrýstingur er á köldu vatni. Skoða þarf ákvæði 4. gr. gjaldskrár kaldavatnsveitu.

4.Söfnunartankur fyrir kalt vatn við Laugarvatn

2509017

Tenging söfnunartanka fyrir kalt vatn við Laugarvatn, staða verks.
Veitustjóri greindi frá því að fjórum tönkum hafi verið komið fyrir og að þeir hafi nú verið tengdir.

5.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Virkjun borholu, staðsetning dæluhúss, staða verks.
Inn á fundinn komu í gegnum fjarfundarbúnað fulltrúar Eflu og íbúa að Traustatúni 1 og 10. Farið var yfir mögulegar útfærslur varðandi byggingu dæluhúss.

6.Hönnun vatnsveitu frá Fljótsbotnum

2609001

Farið yfir stöðu undirbúnings frá fyrri árum og næstu skref.
Umræða varð um málið. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að haldið verði áfram með undirbúning og hönnun á styrkingu kaldavatnsveitunnar í Fljótsbotnum. Ljóst er að þörf er á auknu vatnsmagni til að byggð og atvinnurekstur geti vaxið með sama hætti og verið hefur síðustu ár. Sveitarstjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs er falið að leggja fram tillögu að tilhögun að hönnun.

7.Útboð sundlaugar í Reykholti

2505017

21. verkfundur haldinn 10.08.2026

22. verkfundur haldinn 24.08.2026
Fundargerðinar voru lagðar fram.

8.Gatnagerð Fálkamýri/Kotstún

2601046

4. verkfundur haldinn 17.08.2026
Fundargerðin var lögð fram.

9.Endurbætur á gatnamótum Skálholtsvegar og Holtagötu

2503034

Sviðsstjóri fer yfir stöðu verksins.
Sviðsstjóri gerði grein fyrir því að lokið hefði verið við lagnavinnu og malbikun. Unnið verður að frágangi meðfram veginum á næstu dögum.

10.Tæki í líkamsrækt í Reykholti

2609002

Kaup á tækjum í líkamsrækt
Oddviti gerði grein fyrir tilboðum í tækjakaup.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?