Framkvæmda- og veitunefnd
Dagskrá
1.Virkjun borholu á Laugarvatni
2503035
Virkjun borholu, staðsetning dæluhúss, staða verks. Framkvæmdaleyfisumsókn vegna lagna.
2.Upptekt borholudælu Reykholti
2606009
Staða verks.
Veitustjóri fór yfir stöðu verksins. Niðurstaða skoðunar var að bíða með upptekt á dælu til næsta sumars.
3.Virkjun borholu í Reykholti RH 07
2501063
Bygging dæluhúss og tengingar. Staða verks.
Sviðsstjóri og veitustjóri fóru yfir stöðu verksins. Tankurinn er kominn inn og langt komið að loka húsinu. Unnið verður að tengingum á næstu dögum.
4.Nýtingarleyfi fyrir borholu RH-07
2502031
Nýtingarleyfi fyrir borholu RH-07 í Reykholti.
Lagt var fram nýtingarleyfi fyrir borholu í Reykholti, RH-07. Sviðsstjóra og veitustjóra er falið að koma á ferlum vegna innra eftirlits, líkt og áskilið er í nýtingarleyfinu.
5.Framkvæmdir við sundlaug í Reykholti
2505017
23. verkfundur haldinn 07.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
6.Gatnagerð Kotstún/Fálkamýri
2601045
5. verkfundur haldinn 16.09.2026.Tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun til að unnt verði að ljúka gatnaframkvæmdinni.
7.Göngustígar, lagning og klæðning 2026
2604032
Tilboð í malbikun göngustíga.
Lögð voru fram tilboð í malbikun. Höfði á lægsta tilboð og verður samið við félagið.
8.Útboð yfirborðsfrágangs Borgarrimi
2603037
Staða verks
Sviðsstjóri fór yfir stöðu verksins. Búið er að klæða götuna og gangstétt verður tekin um leið og aðrar gangstéttar/stígar, í byrjun október.
9.Traustatún, 2. áfangi
2511022
2. verkfundur haldinn 08.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Viðhald búningsklefa í íþróttahúsinu á Laugarvatni
2604026
Viðhald búningsklefa, tillaga að útfærslu.
Farið var yfir tillögur um breytingar á búningsklefum.
11.Breytingar á innra skipulagi leikskólans Bláskóga Gullkista
2605001
Staða verks. Tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna þess sem útaf stendur af verkinu.
12.Tankur fyrir hitaveitu Reykholti
2406025
Endurnýjun á tanki og búnaði hitaveitu við Reykholtshver
Veitustjóri fór yfir þörf fyrir lagfæringar á búnaði vði hitaveitu í Reykholti, gert er ráð fyrir framkvæmdum í fjárhagsáætlun næsta árs. Skoða þarf að vinna hluta verksins á þessu ári.
13.Gjaldskrá vatnsveitu 2026
2511030
Tillaga um að heimild í 5. gr gjaldskrár kaldavatnsveitu Bláskógaveitu verði virkjað.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að heimildin verði virkjuð.
14.Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ
2602024
Erindi Náttúruhamfaratryggingar, dags. 27.08.2026.
Lagt fram til kynningar.
15.Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026
2604027
Niðurstöður baðvatnssýnatöku, skýrsla dags. 16.09.2026.
Lagt fram til kynningar. Niðurstöður stóðust viðmið.
16.Umsókn um stækkun heimlagna, heitt og kalt, Ferjuvegur 7 (Engi)
2606037
Umsókn um heimlögn, veitustjóri fer yfir. Áður á dagskrá á 82. fundi.
Veitustjóri fór yfir viðræður við umsækjanda. Framkvæmda- og veitunefnd samþykkir umsóknina. Veitustjóri tekur saman áætlun um kostnað og kynnir fyrir umsækjanda.
17.Heimlögn, Teigur Laugarási
2609037
Breytingar á heimlögn, veitustjóri fer yfir málið.
Veitustjóri fór yfir lagnalegu á lóðinni. Framkvæmda- og veitunefnd samþykkir að endurnýja lögn að húsvegg íbúðarhúss.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Farið var yfir gögn frá Eflu um staðsetningu dæluhúss og annars búnaðar.