Framkvæmda- og veitunefnd

85. fundur 16. október 2026 kl. 08:00 - 09:20 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Formaður
  • Helgi Kjartansson Varaformaður
  • Óli Björn Finnsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Kristófer Arnfjörð Tómasson Sviðsstjóri
  • Ólafur Jósef Ólafsson Veitustjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Virkjun borholu á Laugarvatni

2503035

Staða verkefnis.

Fundargerð frá opnun tilboða.
Farið var yfir mögulega útfærslu á tengingu borholunnar til bráðabirgða. Veitustjóra er falið að vinna áfram að verkinu. Veitustjóra er falið að leggja fram minnisblað fyrir fund sveitarstjórnar nk miðvikudag.

2.Útboð sundlaugar í Reykholti

2505017

Fundargerðir verkfunda:

24. fundur haldinn 21.09.2026

25. fundur haldinn 06.10.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

3.Raflögn að Fremstaveri

2503031

Upplýsingar um lagningu rafstrengs.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu verksins. Búið er að leggja strenginn að Fremstaveri.

4.Traustatún, 2. áfangi

2511022

4. verkfundur haldinn 14.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar. Verklok eru áætluð 3. nóvember nk.

5.Gatnagerð Kotstún

2601045

6. verkfundur haldinn 14.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:20.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?