Skipulagsnefnd

32. fundur 30. október 2008 kl. 09:57 - 09:57
SKIPULAGSNEFND UPPSVEITA ÁRNESSÝSLU Samvinnunefnd Bláskógabyggðar, Grímsnes-og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða-og Gnúpverjahrepps um skipulagsmál.     FUNDARGERÐ
  1. FUNDUR
fimmtudaginn 14. desember 2006, kl. 9 haldinn á Laugarvatni Nefndarmenn: Snæbjörn Sigurðsson (varamaður) Bláskógabyggð Ingvar Ingvarsson Grímsnes-og Grafningshr. Sigurður Ingi Jóhannesson Hrunamannahreppur Gunnar Örn Marteinsson Skeiða-og Gnúpverjahr. Skipulagsfulltrúi uppsveita og framkvæmdastjóri skipulagsnefndar: Pétur Ingi Haraldsson   FUNDARGERÐ Sameiginleg mál
  1. Loftmyndir ? til kynningar
Skipulagsfulltrúi lagði fram upplýsingar um verð á loftmyndum fyrir sveitarfélögin fjögur í tengslum við uppbyggingu landupplýsingakerfis fyrir embættið.Leitað var tilboða frá Loftmyndum ehf., Hnit hf. og Landmælinga (gervihnattamyndir).   Bláskógabyggð
  1. Tjörn í Biskupstungum, lóðablað og fyrirspurn um staðsetningu á gám og
gróðurhúsi. Lagt fram landsspildublað sem unnið er af Böðvari Guðmundssyni yfir 37,58 ha spildu úr landi Tjarnar í Biskupstungum. Beiðandi er Magnús Magnússon. Umrætt svæði er austan við veginn að Tjörn þar sem hann tengist Reykjavegi. Landeigendur Torfastaða, Vegatungu og Bóls hafa samþykkt afmörkun landsins með undirskrift á uppdrátt. .Meðfylgjandi er einnig drög að leigusamningi fyrir landið. Í umsókninni er jafnframt óskað eftir heimild til að reisa 208 m² gróðurhús (dúkhús á steypukubbum) og leyfi til að staðsetja 20 m² gám sem nýta á sem geymslu. Lóðablaðið er samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga. Varðandi gróðurhús að þá er málinu frestað þar til nánari lýsing á húsinu liggur fyrir s.s. hæð þess og byggingarefni (einangrun).  
  1. Syðri-Reykir, fyrirspurn
Lagðar fram teikningar af nýju 100 m² sumarhúsi á 4109 m² lóð í landi Syðri Reykja. Áður fyrr voru þetta tvær lóðir, lóð nr. 3 (1.389m²) og lóð nr. 6 (2.720 m²), en þær voru sameinaðar fyrir nokkrum árum. Á lóðinni, er fyrir 63 m² frístundahús. Fyrirhugað var að staðsetja nýtt hús á svæði sem áður var lóð
  1. 3. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagsnefnd telur það ekki samræmast stefnu sveitarfélagsins að byggja nýtt 100 m² hús á umræddri lóð. Í dag er almennt miðað við að lágmarksstærð frístundahúsalóða sé 5.000 m² og því er heldur ekki hægt að skipta lóðinni, þó svo að áður hafi verið um tvær lóðir að ræða. Einnig er það samþykkt stefna sveitarfélagsins að leyfa ekki stærra aukahús en 30 m² og að hámarksnýtingarhlutfall lóða skuli ekki fara upp fyrir 0.03. Á umræddri lóð er því eingöngu hægt að stækka núverandi hús, að nýja húsið verði um 30 m², eða byggja nýtt hús og rífa það eldra. Ef um er að ræða umfangsmiklar breytingar á lóð þarf að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir skv. 7. mgr. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Úthlíð í Biskupstungum, Vörðuás 11 ? 14. Breyting á deiliskipulagi
frístundabyggðar. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Úthlíð. Beiðandi er Páll Bjarnason, Verkfræðistofu Suðurlands, f.h. landeigenda. Skipulagssvæðið er um 18 ha og er staðsett ofan við eldri hluta frístundabyggðar í Úthlíð og er aðkoma að svæðinu um götuna Vörðuás. Gert er ráð fyrir 10 lóðum á bilinu 1,6 ? 2 ha þar sem heimilt verður að reisa allt að 150 m² frístundahús og allt að 20 m² aukahús.Hæð húsa má að hámarki vera 6,5 m frá neðsta gólfkóta. Skipulagsnefnd telur að bæta þurfi við upplýsingum í skilmála skipulagsins um hámarkshæð húsa frá jörðu. Einnig er bent á að lóðirnar Vörðuás 11 og 14 eru ekki á gildandi deiliskipulagi og ætti því ekki sýna þær á uppdrætti. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar komið hefur verið til móts við ofangreindar athugasemdir og þegar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins liggja fyrir.  
  1. Efra Apavatn 2 í Laugardal, lóðablað.
Lagt fram landsspildublað unnu af Verkfræðistofunni Hnit í mkv. 1:4.000 af 68 ha spildu úr landi Efra-Apavatns 2 í Laugardal. Landið afmarkast af Laugarvatnsvegi, Grafará og Urriðalæk sem jafnframt eru landamerki við Gröf/Lækjarhvamm, og svo markarskurði við Efra-Apavatn 1 Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um samþykki eiganda Efra-Apavatns I.  
  1. Hjálmsstaðir í Laugardal, lóðablað.
Lögð fram tvö landsspildublöð yfir 6 lóðir úr landi Hjálmsstaða í Laugardal. Lóðir merktar 1- 5 er sunnan Laugarvatnsvegar og er lóð 1 12.057 m² að stærð en lóðir 2-5 eru allar 10.000 m². Að auki er afmörkuð 12.471 m² lóð norðan Laugarvatnsvegar utan um núverandi íbúðarhús.Landið liggur ekki upp að landi í eigu annarra. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Útey í Laugardal, deiliskipulag frístundalóðar.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi tveggja frístundahúsalóða, Vesturey 1 og 3, í landi Úteyjar í Laugardal. Beiðandi er Pétur H. Jónsson f.h. landeigenda. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir að núverandi 1 ha lóð er skipt í tvær 0,5 ha lóðir þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús. Um 40 m² hús er þegar til staðar á annarri lóðinni. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands liggur fyrir.  
  1. Mjóanes í Þingvallasveit, deiliskipulag frístundabyggðar.
Lögð fram tilaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Mjóaness í Þingvallaveit. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 20 frístundahúsalóðum á um 55,4 ha svæði, 18 eru um 3 ha, ein er 1,2 ha og ein er 2.000 m². Umsagnir Fornleifaverndar ríkisins, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Umhverfisstofnunar liggja fyrir. Tillagan var í kynningu frá 19. október til 16. nóvember með athugasemdafrest til 30. nóvember. Ahugasemdir bárust frá 5 aðilum sem allir eru núverandi eigendur að hluta landsins eða verðandi eigendur að einstökum lóðum. Gerð er athugasemd við afmörkun lóða, fjarlægð byggingarreita frá vatni og legu vega. Í ljósi athugasemda að þá felur skipulagsnefnd skipulagsfulltrúa að fara yfir tillöguna í samráði við hönnuð og landeigendur. Meðal annars þyrfti að skoða betur hvort að afmarka mætti byggingarreiti nánar, m.a. með það að markmiði að lágmarka sjónræn áhrif byggðarinnar á sama tíma og komið er til móts við óskir lóðarhafa um staðsetningu húsa á lóðunum.     Grímsnes-og Grafningshreppur
  1. Ásgarður í Grímsnesi, 2. áfangi, Giljatunga/Borgarbrún. Deiliskipulag
frístundabyggðar. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi 2. áfanga frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Beiðandi er Hermann Ólafsson f.h. landeigenda. Skipulagssvæðið er rúmir 69 ha og afmarkast af Sogsvegi(nr. 36) að vestan, landamörkum við Syðri-Brú og háspennulínu að norðan, og núverandi frístundabyggðarsvæði í Ásgarði að sunnan. Gert er ráð fyrir 62 lóðum á bilinu 0,5 ? 1,5 ha þar sem heimilt verður að reisa allt að 150 m² auk allt að 25 m² aukahús. Til viðbótar er heimilt að hafa geymslukjallara undir hluta eða öllu frístundahúsinu. Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar um tengingu við þjóðveg. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins liggja fyrir. Bent er á að lóðir mega að lágmarki vera 0,5 ha auk þess sem bæta þarf við í greinargerð að hámarksnýtingarhlutfall lóða sé 0.03.  
  1. Búrfell I í Grímsnesi, svæði 1, ósk um breytingu á deiliskipulagi
frístundabyggðar. Lögð fram að nýju beiðni Jóhanns Rúnarssonar f.h. Stubbana ehf. um breytingu á deiliskipulagi í landi Búrfells I (sjá ofan) vegna lóðarinnar Víðibrekku 23. Óskað er eftir að fá að byggja 180 m² frístundahús á lóðinni sem er 10.450 m² að stærð, en í gildandi skilmálum er heimilt að reisa allt að 100 m² frístundahús auk gestahúss. Fram kemur að lóðin er eftst á svæðinu og skyggir ekki á önnur hús í hverfinu. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Búrfells I á svæðum 1 og 2 í samræmi við ofangreinda beiðni.  
  1. Klausturhólar í Grímsnesi. Deiliskipulag frístundabyggðar.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á um 20 landsspildu úr landi Klausturhóla. Umsækjandii er Byggingarfélagið Geysir. Skipulagssvæðið er norðan Biskupstungnabrautar og nær upp að frístundabyggðasvæði í Kerhrauni. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 28 lóðum á bilinu 0,5 ? 0,7 ha þar sem heimilt verður að reisa allt að 150 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús, en nýtingarhlutfall lóða má þó að hámarki vera 0.03. Um 4,3 svæði upp að Biskupstungnabraut er tekið frá til útivistar auk svæðis undir göngustíg í gegnum hverfið. Gert er ráð fyrir að svæðið tengist vatnsveitu Grímsnes- og Grafningshrepps. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til umsögn Umhverfisstofnunar liggur fyrir. Einnig þurfa lóðir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins. Að auki er bent á að hnitsetja þarf lóðirnar.  
  1. Kringla 2 í Grímsnesi, breyting á skilmálum deiliskipulags
frístundabyggðar. Lögð fram endurskoðuð beiðni um breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Kringlu 2. Beiðandi er Jón Sigurðsson. Óskað er eftir að skilmálum deiliskipulagssins fyrir lóð 17 verði breytt á þann veg að heimilt verði reisa allt að 250 m² hús, þ.a. 62 m² innbygð bílgeymsla, og allt að 25 m² hesthús. Allar lóðir innan deiliskipulagssvæðis eru um og yfir 10 ha að stærð og skv. núgildandi skilmálum má reisa allt að 100 m² frístundahús og 10-15 m² geymslu. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa ofangreinda breytingu skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga sem nær til alls svæðisins, þ.e. að heimilt verði að reisa allt að 300 m2 hús og 40 m2 aukahús.  
  1. Minniborg í Grímsnesi, ferðaþjónustuhús. Eignaskipting lóðar.
Kynntar hugmyndir Minni Borga ehf. um eignaskiptingu lóðar sem skipulögð er fyrir leigufrístundahús. Sá möguleiki er fyrir hendi að einstaka hús verði seld til annarra félaga og hugsanlega einstaklinga. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.  
  1. Þóroddsstaðir í Grímsnesi, lóðablað.
Lagt fram landsspildublaði í mkv. 1:4.000 unnu af Böðvari Guðmundssyni af 25 ha spildu úr landi Þóroddstaða (168295) í Grímsnesi. Austurhluti svæðisins liggur upp að Laugarvatnsvegi og norðurhluti þess að landi Neðra Apavatns. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um samþykkt eigenda aðliggjandi lands. Minnt er á að skv. 13.grein jarðalaga skuli landskipti á bújörðum einnig staðfest af landbúnaðarráðherra.  
  1. Öndverðarnes í Grímsnesi, deiliskipulag frístundabyggðar. Gamalt og
nýtt. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Öndverðarness. Tillagan nær yfir 155 ha svæði og 239 lóðir á bilinu 2.368 ? 11.500 m², þar af eru 198 þegar byggðar en 40 eru nýjar eða óbyggðar. Heimilt verður að reisa allt að 250 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús. Tillagan var í kynningu frá 19. október til 16. nóvember með athugasemdafrest til 30. nóvember. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma en Vegagerðin hefur þó ekki samþykkt aðkomu að tveimur nýjum lóðum norðan Biskupstungnabrautar og vestan Sogsvegar.Tillagan lögð fram með þeirri breytingu að tvær lóðir norðan Biskupstungnabrautar og vestan Sogsvegar falla út auk annarra minniháttar breytinga á afmörkun nokkurra lóða og byggingarreita. Einnig er í skilmálum nú kvöð um aðkomu að lóð við Réttarháls 34 í gegnum lóð 32. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytum skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Hrunamannahreppur
  1. Dalbær III, Markarflöt. Deiliskipulag frístundabyggðar.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Dalbæjar III. Beiðandi er Hermann Ólafsson f.h. landeigenda. Tillagan nær yfir 20,3 ha svæði vestan í Galtafelli og kallast Markarflöt. Gert er ráð fyrir 18 lóðum á bilinu 6.300 ? 9.300 m² þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 m² frístundahús og allt að 30m² aukahús. Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015 er hluti svæðisins merkt sem frístundabyggðasvæði F15. Það svæði er þó ekki nægjanlega stórt sem felur í sér að gera þarf breytingu á aðalskipulaginu og frestar skipulagsnefnd því afgreiðslu málsins þar til sveitarstjórn hefur tekið afstöðu til þeirrar breytingar. Bent er á að í samræmi við samþykkt skipulagsnefndar frá 15. nóvember 2006 sem samþykkt var í sveitarstjórn Hrunamannahrepps 6. desember skal vegstæði meginvega innan frístundabyggðasvæða vera 12 m að lágmarki, en minni botnlanga 8 m að lágmarki.  
  1. Efra-Langholt, deiliskipulag frístundabyggðar.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Efra-Langholts.. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 3 frístundahúsalóðum sem allar eru tæplega 3 ha að stærð á svæði sem liggur upp að þjóðvegi 341, Langholtsvegi. Heimilt verður að reisa allt að 200 fm frístundahús en ekki er gert ráð fyrir aukahúsi. Umsögn Fornleifaverndar ríkisins dags. 12. september 2006 liggur fyrir. Tillagan var í kynningu frá 19. október til 16. nóvember með athugasemdafrest til 30. nóvember. Athugasemd barst frá Sveini Flosa Jóhannessyni og Valdimar Harðarsyni með bréfi dags. 10. nóvember 2006. Gerð er athugasemd við afmörkun svæðisins og aðkomu að lóðunum um veg í þeirra landi. Óskað hefur verið eftir umsögn Vegagerðarinnar um aðra tengingu inn á þjóðveg en hún liggur ekki fyrir að svo stöddu. Vegagerðin hefur líka þegar lýst þeirri skoðun sinni að æskilegast væri að nýta þá tengingu sem þegar er til staðar í stað þess að búa til nýja tengingu inn á þjóðveg. Skipulagsnefnd telur að með teknu tilliti til umferðaröryggis að þá sé ekki æskilegt að fjölga tengingum á þessu svæði og beinir því til landeigenda að reyna að ná samkomulagi um notkun núverandi tengingar. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með þeirri breytingu að afmörkun svæðisins breytist í samræmi við athugasemd og með fyrirvara um að samkomulag náist um notkun núverandi vegtengingar.  
  1. Flúðir, Melar. Lóðablað fyrir íbúðarhús og starfsmannahús.
Lagt fram landsspildublað í mkv. 1:1.000 unnið af Verkfræðistofu Suðurlands yfir tvær lóðir, önnur er 1.482 m² úr landi Mela (landnr. 166840) utan um núverandi íbúðarhús og hin er 1.130 m² utan um fyrirhugað starfsmannahús úr landi Varmalækjar. Með fylgdi undirrituð yfirlýsing á blaði frá landeigenda Suðurbrúnar um að landamerkin eru rétt. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga. Minnt er á að skv. 13.grein jarðalaga skuli landskipti á bújörðum einnig staðfest af landbúnaðarráðherra.  
  1. Flúðir, Vesturbrún 3 og 5. Skilmálabreyting.
Lögð fram fyrirspurn Anne B. Hansen arkitekt f.h. lóðarhafa Vesturbrúnar 3 og 5 á Flúðum um breytingu á skilmálum lóðanna. Í breytingunn fælist að heimilt verði að reisa einbýlishús með frístandandi bílageymslum og að mænistefna verði norðvestur/suðaustur. Skipulagsnefnd samþykkir að breyta skilmálum á þann veg að megin mænisstefna breytist, verður norðvestur/suðaustur, en ekki verður heimilt að reisa frístandandi bílageymslu. Samþykkt skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.Grenndarkynning fellur niður þar sem hús skv. breytingu eru í samræmi við aðliggjandi byggð.  
  1. Garður, deiliskipulag frístundabyggðar. Hveramýri.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Garðs sem kallast Hveramýri. Í tillögunni felst að á um 6 ha svæði um 500 m austan við bæinn Hvamm er gert ráð fyrir 7 lóðum á bilinu 2.990 ? 7.393 m² að stærð þar sem heimilt verður að reisa allt að 180 m² frístundahús allt að tvær hæðir með 6 m mænishæð. Hámarksnýtingarhlutfall er 0.03. Tillagan var í kynningu frá 19. október til 16. nóvember með athugasemdafrest til 30. nóvember. Athugasemd barst frá Sigurði Jónssyni hrl f.h. eigenda Hvamms I þar sem ítrekuð er athugasemd sem gerð var við breytingu á aðalskipulagi sama svæðis varðandi aðkomu að svæðinu og ólögmæt mannvirki. Við afgreiðslu aðalskipulagsbreytingarinnar var athugasemdin afgreidd á þann hátt að því var beint til eigenda svæðisins að leita lausna um aðkomu að svæðinu og að byggingarleyfi yrði ekki veitt fyrr en sú lausn lægi fyrir. Svo virðist sem ekki hafi náðs lausn á þessu máli en nú liggja fyrir gögn sem að mati skipulagsnefndar sýna fram á rétt eigenda að spildunni Hveramýri um umferðarrétt um núverandi veg. Skipulagsnefnd frestar þó afgreiðslu málsins að svo stöddu og felur skipulagsfulltrúa að fara yfir málið og koma með tillögu að svari við innkominni athugasemd í samráði við lögfræðing sveitarfélagsins.  
  1. Sunnuhlíð. Tillaga að íbúðarsvæði til kynningar
Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar vestan við núverandi þéttbýli á Flúðum, austan við frístundabyggðina Svangabyggð. Í heild er svæðið um 39 ha að stærð og er þar gert ráð fyrir um 123 íbúðum, bæði í einbýlis- og parhúsum. Lóðirnar eru flestar um 1.000 m² en syðst á svæðinu er gert ráð fyrir 12 stærri lóðum á bilinu 0,6 ? 1,6 ha fyrir smábýli.   Skeiða-og Gnúpverjahreppur
  1. Kílhraun á Skeiðum, lóðablað. Viðbót við Skógræktarreit.
Lagt fram landsspildublað unnið af Pétri H. Jónssyni af 2.580 m² spildu úr landi Kílhrauns. Um er að ræða viðbót sem fellur inn í land Skógræktarreit Árnesinga. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Steinsholt 2 í Gnúpverjahreppi. Lóðablað.
Lagt fram landsspildublað sem unnið er af Einari Bjarnasyni verkfræðingi af 5.900 m² spildu úr landi Steinsholts 2. Fyrir liggur samþykki eigenda aðliggjandi lands. Gunnar Örn Marteinsson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Fleira ekki tekið fyrir Fundi slitið klukkan kl. 12:00 Næsti fundur verður fimmtudaginn 11. janúar 2006 Laugarvatni 14. desember 2006 Snæbjörn Sigurðsson (8721) Ingvar Ingvarsson (8719) Sigurður Ingi Jóhannsson (8710) Gunnar Örn Marteinsson (8720) Pétur Ingi Haraldsson
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?