Skipulagsnefnd

37. fundur 30. október 2008 kl. 10:32 - 10:32
SKIPULAGSNEFND UPPSVEITA ÁRNESSÝSLU Samvinnunefnd Bláskógabyggðar, Grímsnes-og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps, Skeiða-og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps um skipulagsmál.   FUNDARGERÐ
  1. FUNDUR
þriðjudaginn 22. maí 2007, kl. 9 haldinn á Laugarvatni Nefndarmenn: Margeir Ingólfsson Bláskógabyggð Ingvar Grétar Ingvarsson Grímsnes-og Grafningshr. Sigurður Ingi Jóhannesson Hrunamannahreppur Gunnar Örn Marteinsson Skeiða-og Gnúpverjahr. Aðalsteinn Sveinsson Flóahreppur Skipulagsfulltrúi uppsveita og framkvæmdastjóri skipulagsnefndar: Pétur Ingi Haraldsson   FUNDARGERÐ Bláskógabyggð
  1. Bergsstaðir í Biskupstungum. Deiliskipulag frístundabyggðar.
20070574317 Lögð fram endurskoðuð tillaga Landmótunar að deiliskipulagi frístundalóða í landi Bergsstaða, spilda með landnr. 189405.Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem verður auglýst samhliða. Gert er ráð fyrir tveimur 2 ha lóðum á svæði milli Tungufljóts og þjóðvegar
  1. 358, rétt sunnan við landamerki við Drumboddstaði. Heimilt verður að
reisa allt að 150 fm frístundahús og 20-25 fm aukahús á hvorri lóð. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar sem ekki liggur fyrir staðfesting sveitarfélagsins á tengingu við vatnsveitu. Einnig er bent á fyrri afgreiðslu skiulagsnefndar þar sem fram kemur m.a. að fjarlægð frístundahúsa frá vatnsbakka ætti að vera a.m.k. 100 m  
  1. Efri-Reykir í Biskupstungum. Breyting á deiliskipulagi. 20070527319
Lögð fram tillaga Verkfræðistofu Suðurlands að breytingu á deiliskipulagi í landi Efri-Reykja.Í tillögunni felst að lóðir nr. 7 og 9 við Reykjaveg sameinast í eina auk þess sem lóð nr. 17 við sömu götu stækkar um u.þ.b. 1.000 fm. Skipulagsnefnd telur breytinguna vera óverulega og samþykkir hana skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin felur í sér að frístundahúsum fækkar frá því sem nú er gert ráð fyrir. .  
  1. Iða II í Biskupstungum. Deiliskipulag frístundabyggðar í Vörðufelli.
20070487291. Lögð fram endurskoðuð tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Iðu II í Vörðufelli. Málið var áður á dagskrá 24. apríl 2007. Gert ráð fyrir 12 lóðum á bilinu 5.800 ? 6.900 fm þar sem heimilt verður að reisa allt að 200 fm frístundahús og 20 fm aukahús, en nýtingarhlutfall má þó að hámarki vera 0,03. Breyting frá fyrri tillögu er sú að bætt hefur verið inn upplýsingum um að neysluvatn verði fengið úr vatnsbóli ofan við byggðina. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga. Leitað verður umsagnar Fornleifarverndar ríkisins og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands..  
  1. Kjóastaðir I í Biskupstungum. Lóðablað.20070588320
Lagt fram lóðablað frá Verkfræðistofu Suðurlands af 35,85 ha spildu úr landi Kjóastaða I. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um 13. gr. jarðalaga.  
  1. Kjóastaðir í Biskupstungum. Reiðskemma skv. 3. tl.
Lögð fram tillaga að tæplega 600 fm reiðskemmu á landi Kjóastaða III á svæði mitt á milli núverandi íbúðarhúss og þjóðvegar. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 3.tl. bráðabirgðaákvæða skipulagsog byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Laugarvatn í Laugardal, Háholt 3-5. Óveruleg breyting á deiliskipulagi.
20070569326 Lögð fram tillaga Landforms að óverulegri breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Einbúa á Laugarvatni, Háholt 3-5. í tillögunni felst að 6 íbúða raðhús breytist í tvær lóðir fyrir einbýlishús, eins og gert var ráð fyrir í upphaflegu skipulagi svæðisins. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga. Fyrir liggur uppdráttur með undirskrift íbúa nærliggjandi íbúða.  
  1. Laugarvatn í Laugardal. Deiliskipulag 1. áfanga nýs íbúðarsvæðis.
20070419266 Lögð fram tillaga Landform að deiliskipulagi 1. áfanga nýs íbúðarsvæðis á Laugarvatni sunnan við Menntaskólann. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 87 íbúðum í heild, þ.a. 45 í einbýli, 24 í parhúsum og 18 í raðhúsum. Aðkoma að svæðinu verður um nýja tengingu við Laugarvatnsveg (þjóðveg nr. 37) auk þess sem gert er ráð fyrir göngutengingu við miðsvæði Laugarvatns. Gert er ráð fyrir jarðvegsmönum meðfram þjóðvegi til að minnka áhrif umferðarhávaða. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits og Fornleifaverndar ríksins.  
  1. Útey II í Laugardal, endurskoðun deiliskipulags. 20070479280.
Lögð fram endurskoðuð tillaga Andra H. Sigurjónssonar landslagsarkitekts að endurskoðun deiliskipulags á svæði umhverfis bæjartorfu Úteyjar II við Laugarvatn. Málið var áður á dagskrá 24. apríl 2007. Í endurskoðun felst m.a. að lóðum fyrir frístundahús fjölgar um 3, úr 9 í 12, auk þess sem gert er ráð fyrir nýrri lóð fyrir skemmu/hesthús og lóð sem afmörkuð utan um bragga á svæðinu. Lóðirnar eru allar 2.500 fm utan ein sem verður 4.000 fm.. Gert er ráð fyrir að hámarksnýtingarhlutfall lóða verði 0.03. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Grímsnes-og Grafningshreppur
  1. Ásgarður í Grímsnesi, 2. áfangi frístundabyggðar Búgarðs.
Giljatunga/Borgarbrún. 20070234232 Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi 2. áfanga frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnesi, land Búgarðs. Skipulagssvæðið er um 70 ha og afmarkast af Sogsvegi að vestanverðu, landamörkum við Syðri-Brú og háspennulínu að norðanverðu og núverandi frístundabyggðarsvæði í landi Ásgarðs að sunnanverðu. Tillagan var í kynningu frá 1. mars til 29. mars 2007 með athugasemdafresti til 12. apríl 2007. Athugasemd barst frá Guðmundi Bjarnasyni f.h. félags lóðarhafa við Þórstíg, auk 6 samhljóða athugasemdabréfa frá lóðarhöfum við Þórsstíg. Í auglýstri tillögu var gert ráð fyrir 62 lóðum en nú liggur fyrir endurskoðuð tillaga þar sem lóðum hefur verið fækkað um 7 til að koma til móts við athugasemdir, m.a. hefur verið fallið frá nýrri lóð við Þórsstíg. Í heild ná lóðir yfir um 65% af svæðinu sem er vel í samræmi við ákvæði aðalskipulags. Fyrir liggur umsögn Fornleifarverndar ríkisins dags. 3. janúar 2007 og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands dags. 23. apríl 2007. Gerðar hafa verið breytingar á tillögunni til að koma til móts við athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands í kjölfar samráðs, en ný umsögn liggur þó ekki fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með ofangreindum breytingum, með fyrirvara um jákvæða umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Skipulagsfulltrúa er falið að svara athugasemum í samráði við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps.  
  1. Björk I í Grímsnesi. Deiliskipulag frístundabyggðar. 20070524321
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipulagi frístundabyggðar á 83 ha spildu í landi Bjarkar, vestan við heimreið að bæjartorfu Bjarkar og austan við vatnsból. Gert er ráð fyrir 57 lóðum á bilinu 5.300 til 9.500 fm að stærð þar sem heimilt verður að reisa frístundahús á bilinu 50-200 fm auk 25 fm aukahúss. Hámarksnýtingarhlutfall lóða er 0.03. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarmála þegar staðfesting á neysluvatnstöku liggur fyrir og bætt hefur verið við svæði fyrir sorpgáma.. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins.  
  1. Borg í Grímsnesi. Hreinsistöð og skólalóð. Breyting á deiliskipulagi.
20070572322 Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að breytingu á deiliskipulagi þéttbýlisins á Borg í Grímsnesi. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir 1.400 fm iðnaðarsvæði undir hreinsistöð vestan við félagsheimilið auk þess sem gert er ráð fyrir að skólalóð stækki á kostnað lóðar fyrir verslu og þjónustu.Gert er ráð fyrir að tillagan verði auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með þeirri breytingu að skólalóð minnkar lítillega. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um tillöguna. Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við skipulagshönnuð um breytingarnar.  
  1. Brjánsstaðir í Grímsnesi. Íbúðarhús skv. 3.tl. 20070546323
Lögð fram tillaga Kristínar Jónsdóttur að nýju íbúðarhúsi á Brjánsstöðum í Grímsnesi. Húsið er á þremur hæðum og í heild um 474 fm að flatarmáli, þ.a. er um 81 fm bílskúr á neðstu hæðinni. Húsið er staðsett mitt á milli tveggja núverandi íbúðarhúsa á Brjánsstöðum. Skipulagsnefnd samþykkir ofangreinda tillögu skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Kiðjaberg í Grímsnesi, Langitangi. Breyting á deiliskipulagi.
20070406267 Lögð fram tillaga Péturs Jónssonar að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kiðjabergs, svæði sem kallast Langitangi. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir einni 5,4 ha lóð með tveimur byggingarreitum þar sem heimilt verður að reisa allt að 200 fm frístundahús og allt að 25 fm aukahús. Tillagan var í kynningu frá 11. janúar til 8. febrúar 2007 með fresti til athugasemda til 22. febrúar. Engar athugasemdir bárust. Tillagan var auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi svæðisins og hefur sú breyting nú verið staðfest af Umhverfisráðuneytinu. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Klausturhólar í Grímsnesi, Rimar. Deiliskipulag
frístundabyggðar.20070526324 Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipulagi frístundabyggðar á um 170 ha svæði úr landi Klausturhóla. Svæðið kallast Rimar og liggur frá Búrfellsvegi, meðfram Hæðarendalæk að austanverðu. Í heild eru á bilinu 12- 130 lóðir á svæðinu á bilinu 5.000 til 20.000 fm að stærð og þar af er um helmingur þeirra þegar byggðar. Heimilt verður að reisa frístundahús á bilinu 50-200 fm auk allt að 40 fm aukahúss. Nýtingarhlutfall lóðar má þó að hámarki vera 0.03. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um að svæði fyrir sorpgáma verði bætt við og staðfestingu á neysluvatnstengingum. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins.  
  1. Krókur í Grafningi, deiliskipulag frístundabyggðar. 2007043283.
Lögð fram endurskoðuð tillaga Landmótunar að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Króks í Grafningi. Tillagan var áður til umfjöllunar í skipulagsnefnd 24. apríl 2007. Skipulagssvæðið er 120 ha og er gert ráð fyrir 110 frístundahúsalóðum.Tillagan var í kynningu ásamt aðalskipulagsbreytingu frá 19. október til 16. nóvember 2006 með fresti til athugasemda til 30. nóvember 2006. Engar athugasemdir bárust. Fyrir liggja umsagnir Umhverfisstofnunar,Heilbrigðiseftirlits Suðurlands,Fornleifaverndar ríkisins, Vegagerðarinnar og Landsnets.Gerðar hafa verið breytingar á tillögunni eftir auglýsingu til að koma til móts við umsögn Landsnets. Í breytingunum felst að byggingarbannsvæði háspennulínu stækkar og afmörkun lóða meðfram línunni breytist í samræmi við það. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv.25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Nesjar í Grafningi, breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.
20070331260 Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Nesja í Grafningi. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir nýrri 0,5 ha lóð við Réttarháls 7 þar sem heimilt verður að reisa allt að 185 fm frístundahús. Skilmálar gildandi deiliskipulag fyrir aðrar lóðir á svæðinu breytast ekki. Tillagan var í kynningu frá 1. mars til 29. mars 2007 með fresti til athugasemda til 12. apríl. Athugasemd barst frá lóðarhöfum við Réttarháls 8 og 9. Auk athugasemda liggja fyrir drög að umsögn um innkomnar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga óbreytta og samþykkir jafnframt þá umsögn um athugasemdir sem fyrir liggur.   Hrunamannahreppur
  1. Efra-sel. Fyrirspurn um leyfilega stærð sumarhúss.
Lögð fram beiðni lóðarhafa að lóð 22a í Svanabyggð um að fá leyfi til að byggja 94,5 fm frístundahús og 12 fm aukahús. Í gildandi skipulagi er heimilt að byggja 90 fm frístundahús. Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki skilmálum deiliskiplagsins og samþykktum sveitarfélagsins um hámarks nýtingarhlutfall.  
  1. Flúðir, tjaldsvæði. Lóðablöð. 20070511327
Lögð fram tvö lóðablöð yfir tvær samliggjandi spildur við vesturhluta þéttbýlisins á Flúðum. Önnur lóðin er 13.350 fm og verður nýtt undir þjónustusvæði og hin spildan er um 14,3 ha og verður nýtt undir tjaldssvæði.Fyrir liggur samþykkt aðliggjandi landeigenda á afmörkun svæðisins. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Flúðir. Deiliskipulag tjald- og þjónustusvæðis. 20070529325
Lögð fram tillaga Landslags að deiliskipulagi tjald- og þjónustusvæðis á Flúðum. Skipulagssvæðið er 15,7 ha að stærð og þar annarsvegar gert ráð fyrir 13.350 fm lóð þar sem reisa má allt að 1.200 fm þjónustumiðstöð með samþyggðu gróðurhúsi á einni hæð, með möguleika á kjallara. Hinsvegar er skilgreind um 14,3 lóð undir tjaldsvæði þar sem einnig er gert ráð fyrir fjórum byggingarreitum fyrir salerni og einum byggingarreit fyrir þjónustuhús.Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana en að mati skipulagsnefndar mun hún ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér og að ekki sé þörf á frekari lýsingu á umhverfisáhrifum en gert er í breytingu á aðalskipulagi sem auglýst verður samhliða deiliskipulaginu. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillögu skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, með fyrirvara um að heimild fáist til að auglýsa samsvarandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.  
  1. Flúðir, deiliskipulag 1. áfanga íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar.
20070286218 Lögð fram tillaga Landslags að 1. áfanga íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 12 stórum einbýlishúsalóðum (smábýlum) þar sem heimilt verður að reisa allt að 350 fm íbúðarhús á einni hæð og allt að 100 fm aukahús.. Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem nú er til meðferðar og verður tillögurnar auglýstar samhliða. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins.  
  1. Hvammur. Deiliskipulag íbúðarhúss og hesthús/geymslu. 20070537328
Lögð fram tillaga Helga Kjartanssonar að deiliskipulagi í íbúðarhúsalóðar og lóðar fyrir hesthús/geymslu í landi Hvamms 1 í Hrunamannahreppi. Tillagan nær yfir 1,86 ha spildu þar sem gert er ráð fyrir 2.053 fm íbúðarhúsalóð og 7.500 fm lóð fyrir hesthús og/eða gróðurhús. Aðkoma að svæðinu verður frá Hvammsvegi og verður vegtenging við heimreið að Hvammi 2. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins.  
  1. Syðra-Sel. Lóðablað. 20070537328
Lagt fram lóðablað Verkfræðistofu Suðurlands af 3.056 fm lóð í landi Syðra- Sels í Hrunamannahreppi. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um að allir aðliggjandi landeigendar hafi samþykkt afmörkun lóðarinnar.   Skeiða-og Gnúpverjahreppur
  1. Kálfhóll á Skeiðum. Deiliskipulag frístundabyggðar. 20070562329
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á 7 ha spildu úr landi Kálfhóls.Svæðið er innan svæðis em í aðalskipulagi sveitarfélagsins er merkt sem F2. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjórum lóðum á bilinu 5.460 til 7.380 fm að stærð þar sem heimilt er að reisa frístundahús og aukahús. Hámarksbyggingarmagn er 3% af stærð hverrar lóðar. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með þeirri breytingu að fram komi að aukahús megi að hámarki vera 50 fm og að fyrir liggi staðfesting á neysluvatnstöku. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins. Skipulagshönnuður þarf að leita samþykkis Vegagerðarinnar vegna tengingar við þjóðveg.  
  1. Skeiðháholt á Skeiðum. Deiliskipulag frístundabyggðar, grasbýlið Tögl.
20070598331 Lögð fram tillaga Friðbergs Stefánssonar af deiliskipulagi frístundahúsalóða úr landi með landr. 166520 (grasbýlið Tögl) , sem liggur á milli lögbýlana Skeiðháholts 2 og Blesastaða. Gert er ráð fyrir 5 lóðum á bilinu 4.471 til 11.653 fm þar sem heimilt verður að reisa allt að 200 fm frístundahús, 30 fm gestahús, 40 fm áhaldahús og 30 fm gróðurhús. Hámarksnýtingarhlutfall er 0.03. Svæðið liggur upp að deiliskipulagi þriggja um 1 ha lóða úr landi Skeiðháholts 2 sem var samþykkt í sveitarstjórn 2006. Skipulagsnefnd telur að vegna nálægðar við áður skipulagðar lóðir ætti deiliskipulagið einnig að ná yfir þær. Bent er á að á síðasta ári samþykkti sveitarstjórn að hámarksstærð aukahúsa á frístundahúsalóðum megi vera 50 fm og að eingöngu megi gera ráð fyrir einu aukahúsi á hverri lóð. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með ofangreindum breytingum. Einnig þarf að liggja fyrir staðfesting á neysluvatnstöku  
  1. Vestra-Geldingaholt í Gnúpverjahreppi, deiliskipulag nýs lögbýlis sem
kallast Glóruhlíð.20070579315 Lögð fram tillaga Landforms að deiliskipulagi nýs lögbýlis á 31 ha spildu úr Vestra-Geldingaholti. Ger er ráð fyrir allt að 350 fm íbúðarhúsi og allt að 400 fm útihúsum á landi lögbýlisins. Að auki er gert ráð fyrir tveimur 12.000 fm lóðum fyrir frístundahús þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 fm hús.Tillagan er í samræmi við breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjarhrepps sem er í kynningu um þessar mundir. Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands dags. 16. maí þar sem ekki er gerð athugasemd við tillöguna. Skipulagsnefnd telur að einungis ætti að vera ein tenging inn á safnveginn en ekki þrjár. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með ofangreindri breytingu.  
  1. Sandlækur í Gnúpverjahreppi. Lóðablað. 20070575332
Lagt fram lóðablað unnið af Landnot ehf. í mkv. 1:1.000 af 0,56 ha lóð úr landi Sandlæks I. Á lóðinni er gömul skemma sem fengist hefur leyfi til að rífa nú í vor. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um samþykki aðliggjandi lóðarhafa.  
  1. Stóra ?Hof í Gnúpverjahreppi, breyting á deiliskipulagi
frístundabyggðar. 20070485285. Lögð fram endurskoðuð tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Stóra-Hofs. Málið var áður á dagskrá 24. apríl 2007. Í breytingunni fellst að afmörkun og stærð lóða við Smalaskyggni og Grámosa breytist auk þess sem þeim fækkar úr 26 í 21. Ekki eru gerðar breytingar á skilmálum deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd telur tillöguna vera óverulega og samþykkir hana skv. 2. mgr.
  1. gr. skipulags- og byggingarlaga. Grenndarkynning fellur niður.
 
  1. Stöðulfell í Gnúpverjahreppi. Lóðablað.
Lagt fram lóðablað yfir 465,4 fm lóð utan um íbúðarhús (fastanr. 220-2692) á jörðinni Stöðulfell (landnr. 166611). Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Flóahreppur
  1. Laugar í Hraungerðishreppi. Deiliskipulag nýbýlisins Laugamýri.
20070435297. Lögð fram endurskoðuð tillaga Landforms að deiliskipulagi landsspildu úr landi eyðibýlisins Laugar í fyrrum Hraungerðishreppi. Málið var áður á dagskrá skipulagsnefndar 24. apríl 2007. Aðkomu að lóðinni hefur breyst til samræmis við aðalskipulag og í samráði við Vegagerðina. Landið er í heild 77 ha en deiliskipulagið nær til um 5 ha af þeirri spildu. Í tillögunni er gert ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 400 fm íbúðarhús, 120 fm starfsmannahús, 1.200 fm reiðhöll og önnur útihús allt að 1.000 fm. Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands dags. 16. maí þar sem ekki er gerð athugasemd við tillöguna. Fornleifaskráning fyrir jörðina liggur einnig fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Hamar í Gaulverjabæjarhreppi. Lóðablöð.
Lögð fram tvö lóðablöð VGS verkfræðistofu af þremur landsspildum úr landi Hamars í fyrrum Gaulverjabæjarhreppi. Spilda merkt Land I er 10,5 ha og spilda merkt Land II er samtals 106,5 ha. Að auki er gert ráð fyrir að skipta úr jörðinni 8.842 fm lóð sem liggur upp að jörðinni Dverghamar og mun sú lóð bætast við þá jörð. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um að undirskriftir allra aðliggjandi landeigenda liggi fyrir.  
  1. Egilsstaðir 1 í Villingaholtshreppi. Deiliskipulag frístundabyggðar.
20070440296. Lögð fram endurskoðuð tillaga Landforms að deiliskipulagi um 3 ha spildu úr landi Egilsstaða 1 í fyrrum Villingaholtshreppi. Á hluta svæðisins er í gildi deiliskipulag fyrir 3 frístundahúsalóðir sem allar eru um 4.000 fm að stærð. Í tillögunni felst að auk þeirra þriggja lóða sem fyrir eru verða til 2 nyjar um 5.000 fm lóðir fyrir frístundahús auk sameiginlegs svæðis. Heimilt verður að reisa allt að 100 fm frístundahús og allt að 30 fm aukahús á hverri lóð. Gert er ráð fyrir sameiginlegri rotþró fyrir annarsvegar lóðir1 og 2 og hinsvegar 3,4 og 5. Við gildistöku nýs skipulags mun eldra skipulag falla úr gildi. Umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins liggja fyrir og er ekki gerð athugasemd við tillöguna, auk þess sem samráð hefur verið haft við Vegagerðina vegna tenginga inn á þjóðveg nr. 302 Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar, sbr. 3. tl. bráðabirgðaákvæða laganna.. Bent er á að í skilmálum þarf að vera kvöð um aðgengi að lóð 3 og 4 í gegnum lóð 5.  
  1. Skúfslækur í Villingaholtshreppi. Deiliskipulag búgarðabyggðar.
2007056334 Lögð fram tillaga VGS verkfræðistofu að deiliskipulagi 6 lóða á 21,9 ha spildu úr landi Skúfslæk í fyrrum Villingaholtshreppi.Óskað hefur verið eftir að umrætt svæði verði skilgreint sem blönduð landnotkun íbúðarsvæðis og landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sem nú er í vinnslu. Í tillögunni er gert ráð fyrir 7 lóðum sem allar eru um og yfir 3 ha að stærð þar sem heimilt verður að reisa íbúðarhús og hesthús/skemmu. Íbúðarhús hafa þegar verið byggð á tveimur lóðanna. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar, sbr. 3. tl. bráðabirgðaákvæða laganna.Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Fornleifaverndar ríkisins.  
  1. Þingdalur í Villingaholtshreppi. Deiliskipulag lögbýla 20070476290
Lögð fram endurskoðuð tillaga Verkfræðistofu Árborgar að deiliskipulagi 60 ha spildu úr landi Þingdals. Málið var áður á dagskrá skipulagsnefndar 24. apríl 2007. Þá var gert ráð fyrir fimm spildum á bilinu 11,3 til 15,1 ha að stærð en í þeirri tillögu sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að sameina þessar spildur í eina um 60 ha spildu. Á byggingarreit sem áður var innan lóðar 3 er gert ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að þrjú íbúðarhús auk útihúsa. Fyrir liggur umsögn Fornleifaverndar ríkisins dags. 8. maí 2007. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar, sbr. 3. tl. bráðabirgðaákvæða laganna. Leitað verður umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um tillöguna.   Fleira ekki tekið fyrir Fundi slitið klukkan kl. 12 Næsti fundur verður fimmtudaginn 14. júní Laugarvatni 22. maí 2007 Margeir Ingólfsson (8721) Ingvar Ingvarsson (8719) Sigurður Ingi Jóhannsson (8710) Gunnar Örn Marteinsson (8720) Aðalsteinn Sveinsson (8722) Pétur Ingi Haraldsson
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?