Skipulagsnefnd

42. fundur 30. október 2008 kl. 10:34 - 10:34
SKIPULAGSNEFND UPPSVEITA ÁRNESSÝSLU Samvinnunefnd Bláskógabyggðar, Grímsnes-og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps, Skeiða-og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps um skipulagsmál.   FUNDARGERÐ
  1. FUNDUR
Fimmtudaginn 25. október 2007, kl. 9 haldinn á Laugarvatni Nefndarmenn: Margeir Ingólfsson Bláskógabyggð Ingvar Grétar Ingvarsson Grímsnes-og Grafningshr. Sigurður Ingi Jóhannesson Hrunamannahreppur Gunnar Örn Marteinsson Skeiða-og Gnúpverjahr. Aðalsteinn Sveinsson Flóahreppur Skipulagsfulltrúi uppsveita og framkvæmdastjóri skipulagsnefndar: Pétur Ingi Haraldsson   FUNDARGERÐ Sameiginleg mál
  1. Gjaldskrá embættis skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa
Lagt fram til kynningar bréf Óskar Sigurðssonar, Málflutningsskrifstofunni, dags. 10 október 2007 varðandi heimild til gjaldtöku vegna málsmeðferðar deiliskipulags.   Bláskógabyggð
  1. Böðmóðsstaðir í Biskupstungum.
Skipulagsfulltrúi fór yfir stöðu mála varðandi deiliskipulagsbreytingu frístundabyggðar í landi Böðmóðstaða I og II.  
  1. Eiríksbakki í Biskupstungum. Íbúðarhús skv. 3. tl. 20071059463
Lagt fram erindi Kristjáns Skarphéðinssonar dags. 12. október 2007 þar sem óskað er eftir að heimild til að reisa nýtt íbúðarhús á Eiríksbakka. Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu auk greinargerðar um framkvæmdina. Fram kemur að hámarksstærð húss verði 200 fm með bílskúr og verður það staðsett rétt austan við núverandi fjárhús og hlöðu. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Gýgjarhólskot í Biskupstungum. Lóðablað. 20071054468
Lagt fram lóðablað yfir 30 ha spildu úr landi Gýgjarhólskots (landnr. 167094) í Biskupstungum sem liggur að Hvítá. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um samþykki aðliggjandi landeigenda, Brattholts. Ekki er gerð athugasemd við landsskipti skv. 13. gr. jarðalaga. Mælt er með að þinglýst sé kvöð um aðkomu að landinu.  
  1. Haukadalur II í Biskupstungum. Lóðablað / landsskipti, Tungubakki.
20071055466 Lagt fram lóðablað sem unnið er af Pétri H. Jónssyni arkitekt yfir 30 ha spildu (Tungubakki) úr landi Haukadals II í Biskupstungum. Landið afmarkast af þjóðvegi 35 að norðanverðu, Tungufljóti að austaunverðu og frístundabyggð að vestanverðu. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um samþykki aðliggjandi landeigenda annarra en frístundahúsalóða skv. nýsamþykktu deiliskipulagi. Ekki er gerð athugasemd við landsskipti skv. 13.
  1. jarðalaga.
 
  1. Iða II í Biskupstungum. Breyting á skilmálum frístundabyggðar.
20071037467 Lagt fram erindi Skarphéðins P. Óskarssonar dags. 20. september 2007 þar sem óskað er eftir að skilmálum deiliskipulags í landi Iðu II verði breytt þannig að hann fái heimild til að reisa a.m.k. 100 fm frístundahús á lóð nr. 8 auk 20 fm geymsluhúss sem þegar er til staðar. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að reisa 60 fm hús á lóðinni. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á skilmálum ofangreinds deiliskipulags skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þannig að heimilt verði að reisa allt að 150 fm frístundahús á hverri lóð og allt að 30 fm aukahús. Nýtingarhlutfall skal þó ekki vera hærra en 0.03.  
  1. Miðhús í Biskupstungum. Lóðablað, afmörkun og skráning 5 eldri lóða.
20071099459 Lagt fram erindi Sigurðar Guðmundssonar dags. 16. október varðandi afmörkun og skráningu á fimm eldri lóðum úr landi Miðhúsa. Einnig fylgir með uppdráttur í mkv. 1:1.000 dags. 6. september 2005 sem sýnir hnitsetningu lóðanna. Um er að ræða lóðir sem skráðar eru í fasteignamati en hafa ekki verið þinglýstar og eru hús á tveimur lóðanna. Þar sem lóðirnar eru stærri á uppdrætti en skv. skráningu fasteignamats og ekki liggur fyrir samþykki allra aðliggjandi landeigenda getur skipulagsnefnd ekki samþykkt ofangreint lóðablað skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga. Einnig er ekki að sjá að lóð D sé skráð í fasteignamati.  
  1. Úthlíð í Biskupstungum. Breyting á afmörkun og stærð nokkurra
frístundahúsalóða. 20071081469 Lagðar fram þrjár tillögur Verkfræðistofu Suðurlands að breytingum á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Úthlíðar. Um er að ræða breytingar á afmörkun og stærð lóða við Mosaskyggni 6, Rjúpnabraut 5-7, Skútaveg 2-4 og Skútahvamm 1. Ekki er um að ræða breytinga á skilmálum, heldur eingöngu landamerkjum milli lóða. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Mosaskyggni 6, Skútaveg 2-4 og Skútahvamm 1 þegar samþykki lóðarhafa liggur fyrir. Ekki er samþykkt að minnka lóð við Rjúpnabraut þar sem hún er þegar undir almennum viðmiðum um stærðir lóða.  
  1. Úthlíð í Biskupstungum, Vörðuás 11-14. Breyting á deiliskipulagi
frístundabyggðar. 2007108479 Lögð fram endurskoðuð tillaga Verkfræðistofu Suðurlands að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Úthlíðar, Vörðuás 11-14. Á fundi skipulagsnefndar þann 14. desember 2006 var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi þessa svæðis en sú breyting hefur þó ekki verið auglýst. Í tillögunni eins og hún er nú lögð fram er gert ráð fyrir 10 frístundahúsalóðum, sem allar eru á bilinu 1,6 ? 1,8 ha, þar sem heimilt verður að reisa allt að 450 fm frístundahús og allt að 30 fm aukahús. Mænishæð húsanna má vera allt að 7,5 m þar sem jörð stendur hæst. Nýlega hefur tekið gildi breyting á skilmálum fyrir svæði heild sem felur í sér að reisa má allt að 280 fm frístundahús með mænishæð allt að 6,5 m þar sem jörð stendur hæst. Nýtingarhlutfall má þó ekki vera hærra en 0.03. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa breytingu sem felur í sér að heimilt verði að reisa allt að 450 fm frístundahús á þessu svæði en ekki er samþykkt breyting á mænishæð.  
  1. Laugarvatn í Laugardal. Geymsluhúsnæði við íþróttavölll. 20071054462
Lögð fram tillaga að staðsetningu geymslu- og aðstöðuhúss fyrir íþróttavöll á Laugarvatni. Húsnæðið verður gert úr gámum sem settir verða saman og síðan byggt þak yfir. Stærð geymslunnar verður 9 x 9 m og samkvæmt tillögunni verður hún staðsett við suðvesturhluta íþróttavallarins. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Heiðarbær í Þingvallasveit. Bátaskýli skv. 3. tl. 20070942430
Lagt fram bréf Hákons Pálssonar og Jóns Æ. Karlssonar, móttekið 23. október 2007, þar sem óskað er eftir að skipulagsnefnd taki afgreiðslu sýna frá 20. september í máli 20070942430 til endurskoðunar. Málið varðar heimild til að byggja sambyggt bátaskýli á löðarmörkum tveggja lóða í landi Heiðarbæjar. Skipulagsnefnd telur að þar sem nú liggur fyrir nánast fullbúin tillaga að deiliskipulagi svæðisins, sbr. nýlegur fundur skipulagsfulltrúa með landbúnaðarráðuneytinu, að þá sé rétta leiðin að beina umsóknum um bátaskýli í það ferli.   Grímsnes-og Grafningshreppur
  1. Ásgarður í Grímsnesi, Ásborgir. Ósk um breytingu á skilmálum.
20071030461 Lagt fram erindi Þórs Þórssonar dags. 12. október 2007 þar sem óskað er eftir að skilmálum deiliskipulags íbúðarsvæðisins Ásborgir verði breytt þannig að heimilt verði að byggja hús með minni þakhalla en 14 gráður (14-45 gráður í gildandi dsk). Hefur hann hug á að reisa hús með einhalla þaki með um 7 gráðu þakhalla. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skv. 25. skipulags- og byggingarlaga tillögu að breytingu á skilmálum svæðisins á þann veg að leyfilegur þakhalli húsa verði 0-45 gráður.  
  1. Hæðarendi í Grímsnesi, Fossvellir. Deiliskipulag frístundabyggðar.
20071027477 Lögð fram tillaga Arkitektastofunnar Austurvölllur að deiliskipulagi frístundabyggðarinnar Fossvellir í landi Hæðarenda í Grímsnesi. Skipulagssvæðið er um 80 ha að stærð og liggur umhverfis Hæðarendalæk sunnan Búrfellsvegar. Gert er ráð fyrir 108 lóðum á bilinu 0,5 til 0,7 ha þar sem heimilt verður að reisa 150 fm frístundahús og 25 fm aukahús, en hámarksnýtingarhlutfall má þó ekki fara upp fyrir 0.03. Í ljósi þess hversu margar lóðir eru á svæðinu frestar skipulagsnefnd afgreiðslu málsins þar til umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Umhverfisstofnunar, Fornleifaverndar ríkisins og Vegagerðarinnar liggja fyrir. Einnig þarf að liggja fyrir staðfesting á tengingu við vatnsveitu  
  1. Minni-Borg í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi golfvallar. 20071032460
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að breytingu á deiliskipulagi golfvallar í landi Minni-Borgar. Í breytingunni felst að afmarkaðar eru fimm lóðir undir mannvirkjasvæði innan golfvallarins. Afmörkuð er um 0,65 ha lóð undir fyrirhugaðan golfskála og meðfylgjandi bílastæði, rúmleg 0,7 ha lóð unfir fyrirhugað æfingaskýli og áhaldahús, Um 1,3 ha lóð undir nyrðri frístundahúsakjarna (Móaflöt) og um 1,6 ha lóð undir syðri frístundahúsakjarna (Tjaldhólar). Þar sem tillagan felur ekki sér breytingar á byggingum né landslagi að þá telur skipulagsnefnd að um óverulega breytingu sé að ræða og samþykkir hana skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Ormstaðir í Grímsnesi. Deiliskipulag frístundabyggðar. 20071073476
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ormstaða, Vaðholt. Tillaga sem gerði ráð fyrir 10 lóðum á bilinu 6.300 fm til 3,0 ha var auglýst frá 14. desember 2006 til 11. janúar 2007, með athugasemdafresti til 25. janúar. Engar athugasemdir bárust en málið fór þó í bið þar sem hluti svæðisins varð fyrir áhrifum af flóðinu sem varð í Hvítá rétt fyrir jólin 2006. Nú er tillagan lögð fyrir með þeim breytingum að flóðmörk hafa verið afmörkuð inn á svæðið, byggingarreitur hefur verið tekinn út af einni lóðinni auk þess sem byggingarreitur 8 öðrum lóðum hefur minnkað. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til umögn Vatnamælinga Orkustofnunar liggur fyrir.  
  1. Selholt í Grímsnesi. Hesthús skv. 3. tl. sbl. 20071061464
Lögð fram tillaga frá Klöpp arkitektum um staðsetningu nýs hesthúss í landi Selholts (landr. 51.804) í Grímsnesi. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir allt að 1.000 fm hesthúsi á byggingarreit suðaustan við núverandi íbúðarhús. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Sólheimar í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi. 20070934437
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sólheima í Grímsnesi. Gerð er breyting á fjölda og gerð íbúðarhúsa við Upphæðir auk þess sem lega aðkomuvegar breytist. Þá er gert ráð fyrir nýjum íbúðarhúsum austan Sólheimavegar í stað þjónustubygginga, auk vinnubúða (frá Nesjavöllum). Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins á fundi 20. september þar sem umsögn Vegagerðarinnar lá ekki fyrir. Skipulagsnefnd vísar umsögn Vegagerðarinnar til hönnuðar til athugunar.  
  1. Syðri-Brú í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.
20070298215 Lögð fram tillaga Ark-Aust að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar. Í breytingunni felst að skipulagssvæðið stækkar um 45 ha, úr 120 ha í um 165 ha, og lóðum fjölgar um 100, en húsum um 82. Skilmálar breytast ekki, nema að því leyti að nú er gert ráð fyrir möguleikanum á sameiginlegri fráveitu. Tillagan var í kynningu ásamt breytingu á aðalskipulagi svæðisins frá 26. apríl til 24. maí 2007 með athugasemdafresti til 7. júní. Tvö athugasemdabréf bárust. Fyrir liggur umsögn Umhverfisstofnunar um aðalskipulagsbreytinguna og umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um aðalskipulags- og deiliskipulagsbreytinguna. Áður en tillagan var auglýst voru gerðar ákveðnar breytingar til að koma til móts við umsagnirnar. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um jákvæðar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Umhverfisstofnunar og Vegagerðarinnar.  
  1. Öndverðarnes 2 í Grímsnesi. Deiliskipulag 3 frístundahúsalóða.
20071016473 Lögð fram tillaga Verkfræðistofu Suðurlands af deiliskipulagi um 2,2 ha lóðar (landnr. 170121) úr landi Öndverðarness 2 í Grímsnesi við Selvík. Í tillögunni felst að lóðinni er skipt niður í þrjár lóðir, tvær um 8.500 fm og eina 5.000 fm. Heimilt verður að reisa allt að 150 fm frístundahús a og allt að 25 fm aukahús á hverri lóð og má mænishæð vera allt að 6 m frá gólfplötu. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til umsagnir Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands liggja fyrir. Þá þarf einnig að skoða afmörkun lóðarinnar því svo virðist sem svæðið skarist við nýsamþykkt deiliskipulag lands Landsbankans sem liggur upp að deiliskipulagssvæðinu að sunnanverðu.   Hrunamannahreppur
  1. Birtingaholt í Hrunamannahreppi. Deiliskipulag. 20071051471
Lögð fram tillaga Landslags ehf. að deiliskipulagi umhverfis bæjartorfu Birtingarholts. Skipulagssvæðið er um 6,3 ha og nær yfir íbúðarhús og útihús. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir allt að 1.200 fm vélaog verkfærageymslu (reitur A), fyrir allt að 100 fm starfsmannahús (reitur B), fyrir bílskúr við íbúðarhús (reitur C) og fyrir sólstofu við íbúðarhús (reitur D). Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Dalbær III í Hrunamannahreppi. Breyting á deiliskipulagi. 20071036474
Lagt fram erindi Magnúsar Páls Brynjólfssonar f.h. Klettholts ehf. dags. 19. október 2007 þar sem óskað er eftir að skilmálar deiliskipulags frístundabyggðar í landi Dalbæjar III verði breytt þannig að heimilt verði að reisa allt að 200 fm hús í stað 120 fm. Skipulagsnefnd telur að breytingin sé óveruleg þar sem enginn hagsmunaaðili er kominn á svæðið og samþykkir hana skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga með þeirri viðbót að hámarks nýtingarhlutfall megi vera 0.03.  
  1. Flúðir í Hrunamannahreppi. Stækkun verksmiðju Límtrés skv. 3. tl.
Lögð fram tillaga að stækkun verksmiðju Límtrés á Flúðum. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að verksmiðjuhúsið lengist um 35 m til suðvesturs, um 1.200 fm. Auk þess er verið að byggja yfir spónahús við suðurhluta verksmiðju. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Flúðir í Hrunamannahreppi. Deiliskipulag reiðhallar á Lambatanga
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi 4,4 ha svæðis á Lambatanga á Flúðum undir reiðhöll, athafnasvæði/bílastæði, tvo skeiðvelli og skeiðbraut. Heimilt verður að reisa allt að 2.000 fm reiðhöll á svæðinu með allt að 12 m mænishæð. Tillagan var í kynningu ásamt breytingu á aðalskipulagi frá 25. júní til 23. júlí 2007 með athugasemdafresti til 6. ágúst. Engar athugasemdir bárust og hefur aðalskipulagsbreytingin tekið gildi. Tillagan er nú lögð fram með þeirri breytingu að stefna byggingarreitar breytist örlítið frá auglýstri tillögu. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Flúðir, deiliskipulag 1. áfanga íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar.
20070286218. Lögð fram tillaga Landslags að 1. áfanga íbúðarbyggðar í landi Sunnuhlíðar. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 12 stórum einbýlishúsalóðum (smábýlum) á svæði vestan við þéttbýlið á Flúðum, austan við frístundabyggðina Svanabyggð í landi Efra-Sels. Tillagan var í kynningu ásamt breytingu á aðalskipulagi frá 25. júní til 23. júlí 2007 með athugasemdafrest til 6. ágúst. Athugasemdir bárust. Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með smávægilegri breytingu í samræmi við afgreiðslu aðalskipulagsins, þ.e. við bætist um 15 m breytt gróðurbelti þar sem svæðið liggur upp að frístundabyggð í landi Efra-Sels. Varðandi innkomnar athugasemdir að þá er vísað í umsögn skipulagsfulltrúa, f.h. sveitarstjórnar, við breytingu á aðalskipulagi svæðisins.  
  1. Flúðir, deiliskipulag tjald- og þjónustusvæðis á Flúðum.
Lögð fram tillaga Landslags að deiliskipulagi tjald- og þjónustusvæðis á Flúðum. Skipulagssvæðið er 15,7 ha að stærð. Er annarsvegar gert ráð fyrir um 1,3 ha lóð fyrir allt að 1.200 fm þjónustumiðstöð með sambyggðu gróðurhúsi á einni hæð, með möguleika á kjallara. Hinsvegar er skilgreind 14,3 ha lóð undir tjaldsvæði með fjórum byggingarreitum fyrir salerni og einum byggingarreit fyrir þjónustuhús.Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, var í kynningu frá 25. júní til 23. júlí 2007 með athugasemdafrest til 6. ágúst. Engar athugasemdir bárust. Aðalskipulagsbreyting sem auglýst var samhliða hefur verið staðfest. Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Skeiða-og Gnúpverjahreppur
  1. Hlemmiskeið II. Lóðablað. 20071061470
Lagt fram lóðablað frá Verkfræðistofu Suðurlands yfir 14.626 fm spildu úr landi Hlemmiskeiðs II (landr. 166465) á Skeiðum. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um undirskrift aðliggjandi landeigenda. Einnig þarf að liggja fyrir heimild til að nýta vegtengingu og leita samþykkis Vegagerðarinnar.  
  1. Skeiðháholt I. Lóðarblað.20071064475
Lagt fram lóðablað frá Verkfræðistofu Suðurlands í mkv. 1:1.500 dags. 19.10.2007 sem sýnir stækkun lóðar með landnúmer 7.470 fm í 13.648 fm. Stækkunin sem er 6.177 fm er tekin úr landi Skeiðháholts I. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga. Ekki er gerð athugasemd við landsskipti skv. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Gunnbjarnarholt. Vöruskemma og skrifstofuaðstaða. 3.tl. 20071067465
Lagðar fram teikningar af vöruskemmu með sambyggðri skrifstofuaðstöðu í landi Gunnbjarnarholts. Brúttóflatarmál byggingarinnar er samtals 748,8 fm, vegghæð rúmleg 5 m og mænistæð 7,25 m. Gert er ráð fyrir að byggingin verði staðsett um 150 m norður af íbúðarhúsi jarðarinnar. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Þjórsárholt. Deiliskipulag stakrar frístundahúsalóðar. 20071080472
Lögð fram tillaga Landhönnunar að deiliskipulagi stakrar frístundahúsalóðar úr landi Þjórsárholts. Lóðin er 5,24 ha og skv. tillögunni er nýtingarhlutfall hennar 0.03. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til nánari upplýsingar liggja fyrir um staðsetningu lóðar, vegtenginu o.fl.   Flóahreppur
  1. Langholt / Stekkholt í Hraungerðishreppi. Landsskipti.
Lagt fram lóðablað frá Verkfræðistofu Suðurlands þar sem 30 ha landsspildu úr Langholti (landnr. 194067) er skipt í þrjár 10 ha spildur. Deiliskipulag fyrir svæðið hefur þegar verið auglýst en ekki tekið gildi. Fyrir liggur umsókn um stofnun lögbýla á svæðinu. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga. Ekki er gerð athugasemd við landsskipti skv. 13. gr. jarðalaga.     Fleira ekki tekið fyrir Fundi slitið klukkan kl. 12:30 Laugarvatni 25. október 2007 Margeir Ingólfsson (8721) Ingvar Ingvarsson (8719) Sigurður Ingi Jóhannsson (8710) Gunnar Örn Marteinsson (8720) Aðalsteinn Sveinsson (8722) Pétur Ingi Haraldsson
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?