Skipulagsnefnd

45. fundur 30. október 2008 kl. 10:35 - 10:35
SKIPULAGSNEFND UPPSVEITA ÁRNESSÝSLU Samvinnunefnd Bláskógabyggðar, Grímsnes-og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps, Skeiða-og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps um skipulagsmál.   FUNDARGERÐ
  1. FUNDUR
Miðvikudaginn 30. janúar 2008, kl. 9 haldinn á Laugarvatni Nefndarmenn: Margeir Ingólfsson Bláskógabyggð Ingvar Grétar Ingvarsson Grímsnes-og Grafningshr. Sigurður Ingi Jóhannsson Hrunamannahreppur Gunnar Örn Marteinsson Skeiða-og Gnúpverjahr. Aðalsteinn Sveinsson Flóahreppur Skipulagsfulltrúi uppsveita og framkvæmdastjóri skipulagsnefndar: Pétur Ingi Haraldsson   FUNDARGERÐ Bláskógabyggð
  1. Brekkuskógur Í Biskupstungum. Lóðablað. 20080163536
Lagt fram lóðablað Verkfræðistofu Suðurlands dags. 28. janúar 2008 yfir 6.579 fm lóð utan um íbúðarhús úr landi Brekkuskógar (landr. 189173). Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Eiríksbakki í Biskupstungum. Íbúðarhús skv. 3.tl. 20071059463
Á fundi skipulagsnefndar þann 25. október 2007 var samþykkt að heimila byggingu íbúðarhús í landi Eiríksbakka skv. 3. tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- og byggingarlaga. Málið var þó ekki klárað til Skipulagsstofnunar því fljótlega á eftir kom í ljós að land Eiríksbakka á þessu svæði fór undir vatn í flóðum í Hvítá í desember 2006. Tillaga er hér lögð fram að nýju ásamt minnisblaði VST um mælingar sem gerðar voru á svæðinu. Samkvæmt þeim er lægsta hæð húsgrunns um 3,19 m ofan við hæsta mælda hæð flóðfara. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna að nýju skv. 3.tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.  
  1. Iða II í Biskupstungum. Deiliskipulag frístundabyggðar, Eyrarvegur.
20070750375 Lögð fram tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Iðu II milli Skálholtsvegar og Hvíta, neðan við brú að Laugarási. Í tillögunni er gert ráð fyrir 3 lóðum vestan Skálholtsvegar. Á fundi skipulagsnefndar 23. ágúst 2007 var málinu frestað þar sem ekki lágu fyrir upplýsingar um flóðahættu á svæðinu. Nú liggur tillagan fyrir þar sem gerð er grein fyrir hæð flóðs í Hvítá í lok árs 2006. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til fyrir liggja upplýsingar um hæðarmun á hæsta flóðfari og byggingarreitum.  
  1. Kjarnholt I í Biskupstungum. Deiliskipulag frístundabyggðar og
íbúðarlóðar, svæði 1 og 2. 20080157540 Lögð fram tillaga Verkfræðistofu Suðurlands að deiliskipulagi tveggja svæða úr landi Kjarnholts I. Á svæði 1, sem er á ræktuðu landi við bæinn Kjarnholt, er gert ráð fyrir þremur lóðum. Á lóð 1 er gert ráð fyrir allt að 250 fm íbúðarhúsi en á lóðum 2 og 3 er gert ráð fyrir allt að 250 fm frístundahúsi auk 30 fm aukahúss. Svæði 2 er um 20 ha að stærð og liggur upp að Tungufljóti, ofan við eldra deiliskpulagt frístundasvæði. Þar er gert ráð fyrir 30 frístundahúsalóðum á bilinu 5.000 ? 6.560 fm og verður heimilt að reisa allt að 150 fm hús ásamt allt að 30 fm geymslu. Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins er almennt miðað við að nýtingarhlutfall frístundahúsalóða skuli ekki vera hærra en 0.03 og. Varðandi fráveitu að þá telur nefndin að huga þurfi að sameiginlegri fráveitu fyrir svæðið, í heild eða hluta, og frestar afgreiðslu þar til umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands liggur fyrir. Einnig verður leitað umsagnar Fornleifaverndar ríkisins. Þá er einnig bent á að æskilegt væri að gera ráð fyrir gönguleiðum gegnum hverfið að Fagradal auk þess sem sem gera þarf betur grein fyrir skilmálum varðandi hæð gólfs yfir landi.  
  1. Laugar / Haukadalur í Biskupstungum. Framkvæmdaleyfi fyrir reiðstíg.
20080161550 Lagt fram bréf frá reiðveganefnd Loga þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi skv. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga fyrir um 3.000 m reiðveg frá Laug að vestanverðu og umhverfis Laugarfell að norðan að sunnanverðum Haukadalsskógi. Fyrir liggur loftmynd sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu vegarins. Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfið skv. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um að efni verði tekið úr viðurkenndum námum auk þess sem leyfi Landbúnaðarstofnunar skv. 33. gr. laga um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.  
  1. Reykholt í Biskupstungum. Endurskoðun deiliskipulags fyrir austurhluta
þéttbýlissins. 20080113533. Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar arkitekts af deiliskipulagi yfir austurhluta Reykholts. Um er að ræða heildarendurskoðun á deiliskipulagi þessa svæðis en í dag eru nokkrar deiliskipulagsáætlanir sem ná yfir svæðið. Þá hafa verið gerðar þó nokkuð margar breytingar á svæðinu, sumar sem aldrei hafa hlotið endanlegt gildi. Gert er ráð fyrir að við gildistöku þessa skipulags, falli eldri deiliskipulagsáætlanir úr gildi. Tillagan er í samræmi við breytingu á aðalskipulagi svæðisins sem sveitarstjórn hefur samþykkt að auglýsa. Deiliskipulagssvæðið er um 78 ha að stærð og eru einnig 78 lóðir þar innan, flestar þeirra fullbyggðar. Íbúðarhúsalóðir eru 49 talsins og þar af eru 36 byggðar, Garðyrkjulóðir eru 17 og þar af allar byggðar nema 3, verslunarlóðir eru 4 og 2 byggðar og síðan er 8 athafnalóðir og þar af 6 nýjar norðan Biskupstungnabrautar. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Syðri-Reykir í Biskupstungum. Deiliskipulag frístundabyggðar við
Eyrarveg. 20080160547 Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipulagi þriggja frístundahúsalóða í landi Syðri-Reykja við Eyrarveg. Skipulagssvæðið er 31.180 fm að stærð og er gert ráð fyrir tveimur 5.000 fm lóðum og einni 20.780 fm. Húsin skulu ekki vera stærri en 300 fm og á lóðunum er heimilt að reisa geymslu, svefn- eða gróðurhús, ekki stærri en 30 fm. Hámarksnýtingarhlutfall er 0.03. Aðeins er heimilt að reisa eitt hús ásamt útihúsi innan hvers byggingareits. Afgreiðslu frestað þar sem gera þarf grein fyrir aðkomu að lóð nr. 3 auk þess sem tryggja þarf aðgengi að rotþró vegna tæmingar hennar.  
  1. Tjörn í Biskupstungum. Lóðablað, Tjarnarkot. 20080161541
Lagt fram lóðablað/deiliskipulag Kristjáns Bj. Jónssonar frá 1993 yfir 6.000 fm lóð úr landi Tjarnar. Lóðin er norðan við Tjarnarveg og austan heimreiðar að Tjörn. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um að lagt verði fram hnitsett lóðablað.  
  1. Austurey 2, Krossholtsmýri, í Laugardal. Deiliskipulag frístundabyggðar.
20070257199 Lagt fram bréf frá eigendum Austureyjar varðandi frekari rökstuðning fyrir notkun núverandi vegar að fyrirhuguðum lóðum skv.deiliskipulaginu. Er það lagt fram vegna bréfs Skipulagsstofnunar dags. 15. október 2007. Skipulagsnefnd telur enn að aðkoma að fyrirhuguðum lóðum í Krossholtsmýri eins og hún var sýnd í auglýstri deiliskipulagstillögu hafi minnst rask í för með sér og sé þar með hentugust út frá skipulagslegum forsendum. Þá má einnig benda á að eigandi fyrirhugaðra lóða er einnig einn eigandi þess lands sem núvarandi vegur liggur um og hefur þannig, að mati skipulagsnefndar, jafnan rétt á að nýta þann veg.  
  1. Laugarvatn í Laugardal. Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis,
Túnahverfi. 2008017549 Lögð fram fyrirspurn Rúnars Gunnarssonar og Evu Hálfdanardóttur dags. 8. janúar 2007 um hvort að veita megi undanþágu frá skilmálum deiliskipulags íbúðarsvæðis á Laugarvatni um að húsi skuli vera á einni hæð. Þá er einnig lögð fram ósk byggingarfélags Laugarvatns um breytingu á skilmálum varðandi mænisstefnu, sérstaklega við Traustatún. Þá er einnig óskað eftir að byggingarreitir lóðanna Traustatún 10 og 12 verði stækkaðir lítillega. Skipulagsnefnd samþykkir að breyta leyfilegri mænisstefnu á innstu lóðum við Traustatún 1-7 og 12-14 þannig að heimilt verði að reisa hús með mænisstefnu suðvestur norðaustur eða suðaustur norðvestur. Nefndin hafnar því að breyta stærð byggingarreita sem og að heimila tveggja hæða hús.  
  1. Heiðarbær í Þingvallasveit. Framkvæmdaleyfi, bátalægi við lóð nr. 1.
2007086408 Lagt fram að nýju erindi Sigmars K. Albertssonar hrl. dags.12.júlí 2007 vegna umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrir bátalægi við lóð nr. 1 í landi Heiðarbæjar. Á fundi skipulagsnefndar 23. ágúst 2007 var afgreiðslu málsins frestað þar til umsögn Umhverfisstofnunar lægi fyrir. Vegna mistaka tafðist að senda skipulagsnefnd umsögn Umhverfisstofnunar og barst hún ekki fyrr en 9. janúar 2008. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til frekari gögn frá Umhverfisstofnun liggja fyrir.  
  1. Heiðarbær í Þingvallasveit. Framkvæmdaleyfi, bátalægi við lóð.
Lagt fram að nýju erindi Jóns Æ. Karlssonar dags. 6. janúar 2007 þar sem óskað er eftir leyfi til að koma upp aðstöðu til að taka upp bát á lóð í landi Heiðarbæjar. Áður hafði Jón óskað eftir leyfi til að reisa bátaskýli á lóðinni ásamt aðliggjandi lóðarhafa (mál 20070942430). Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu þar til skipulagsfulltrúi hefur farið og kannað aðstæður. Einnig verður leitað umsagnar Umhverfisstofnunar um málið.  
  1. Þingvallaþjóðgarður, Hakið, Þingvallasveit. 20070786376
Lögð fram endurskoðuð tillaga Landslags ehf. að breytingu á deiliskipulagi við Hakið í Þingvallasveit, ásamt umhverfisskýrslu. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir stækkun þjónustumiðstöðvar, nýrri snyrtiaðstöðu auk þess sem bílastæði stækka. Tillagan var upphaflega samþykkt 31. júlí 2007 og síðanauglýst frá
  1. september til 1. nóvember. Engar athugasemdir bárust en skv. afgreiðslu
Skipulagsstofnunar dags. 26. nóvember 2007 fellur breytingin undir lög um umhverfismat áætlana og þarf því að auglýsa hana að nýju ásamt umhverfisskýrslu. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.   Grímsnes-og Grafningshreppur
  1. Ásgarður, Ásborgir, í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi. 20080149552
Lögð fram tillaga Péturs. H. Jónssonar arkitekts að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðisins Ásborgir í land Ásgarðs. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir að lýsing meðfram vegi verði ekki hærri en 4 m í stað 1,5 m. Áfram er gert ráð fyrir að lýsing meðfram heimtröðum verði ekki hærri en 1,5. Þá er ákvæði um að takmarka skuli ljósmengun með því að beina lýsingu niður. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Borg í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi. 20080132551
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar arkitekts að breytingu á deiliskipulagi Borgar. Breytingin nær til athafnalóða við Hraunbraut 4 ? 10 og felst í að heimilt verður að reisa einbýlishús á lóðunum auk mannvirkja tengdum léttum og hreinlegum iðnaði og/eða gróðurhúsabyggð. Ingvar vék af fundi við afgreiðslu málsins. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Göltur í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi. 20071186497
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 20. desember 2007 vegna óverulegrar breytingu á deiliskipulagi í landi Galtar sem samþykkt var á fundi skipulagsnefndar 22. nóvember 2007 og í sveitarstjórn 6. desember. Að mati stofnunarinnar er ekki hægt að líta á breytinguna sem óverulega og að hana þurfi að auglýsa skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Kiðjaberg í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags Kiðjabergs, orlofs- og sumarhúsasvæðis Meistarafélags húsasmiða. Í tillögunni felst að gerð er breyting á skilmálum er varða stærð og útlit húsa, h.lið í greinargerð deiliskipulagsins. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 350 fm frístundahús að grunnfleti og 40 fm aukahús á hverri lóð, þó þannig að nýtingarhlutfall verði ekki hærra en 0.03. Einnig verða breytingar er varða hæðir húsa, mænishæð og þakhalla. Sambærileg breyting á skilmálum svæðisins var samþykkt í sveitarstjórn 6. september 2007 og tók hún gildi með auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda 24. september 2007. Úrskurðarnefnd skipulags og byggingarmála felldi breytinguna síðan úr gildi að kröfu lóðarhafa á lóð nr. 111 í landi Kiðjabergs með úrskurði þann 8. janúar 2008 með vísan til þess að formlegri afgreiðslu sveitarstjórnar hefði verið ábótavant. Af hálfu greindra lóðarhafa hafa athugasemdir fyrst og fremst beinst að sumarhúsabyggingum á lóðum nr. 109 og 112. Ákvæði 4. mgr. 56.
  1. skipulags- og byggingarlaga stendur ekki í vegi umræddrar breytingar á
skilmálum svæðisins. Er því tillagan lögð fram að nýju. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Miðengi í Grímsnesi. Deiliskipulag íbúðarsvæðis. 20080137538
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar arkitekts af deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Miðengis. Tillagan nær yfir 2 ha svæði og er þar gert ráð fyrir tíu 1.024 fm íbúðarhúsalóðum þar sem heimilt verður að reisa 100-300 fm íbúðarhús að grunnfelit. Husin skulu vera á einni hæð en heimilt er að vera með svefnloft eða kjallara þar sem aðstæður leyfa. Hámarks mænishæð er 6 m frá jörðu. Tillagan er í samræmi við breytingu á aðalskipulagi sem sveitarstjórn hefur samþykkt að auglýsa. Á umræddu svæði er í dag í gildi deiliskipulag fyrir tvær íbúðarhúsalóðir en með gildistöku nýs skipulags mun það falla úr gildi. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Miðengi, Borgarleynir, í Grímsnesi. Breyting á deiliskipulagi
frístundabyggðar. 20080157534 Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar arkitekts að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar Borgarleynir í landi Miðengis. Í breytingunni felst að lóðir 15-27 stækki til norðaustur, yfir á svæði á náttúruminjaskrá. Eingöngu er um að ræða stækkun lóðar en byggingarreitir breytast ekki. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Snæfoksstaðir. Framkvæmdaleyfi vegna námu í Tjarnarhól.
20080196537 Lagt fram erindi Böðvars Guðmundssonar f.h. stjórnar Skógræktarfélags Árnesinga dags. 15. janúar 2008 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir rekstri malargryfu í Tjarnarhól í landi Snæfoksstaða. Náman hefur verið í notkun undanfarin 50 ár en í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins kemur fram að henni hafi verið lokað. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til umsögn Umhverfisstofnunar liggur fyrir. Þá er einnig bent á framkvæmdin er háð lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda auk þess sem breyta þarf aðalskipulagi svæðisins.  
  1. Syðri-Brú í Grímsnesi. Deiliskipulag tveggja frístundahúsalóða.
20080127539 Lögð fram tillaga Verkfræðistofu Suðurlands að deiliskipulagi tveggja frístundahúsalóða í landi Syðri-Brúar. Um er að ræða 2 ha spildu (landr. 192476) sem afmarkast af Þingvallavegi nr. 36 að austan, Markarlælk að sunnan og skipulögðu frístundabyggðarsvæði að vestan og norðan. Tillagan gerir ráð fyrir að spildunni verði skipt í tvær 1 ha lóðir, Syðri-Brú lóð A og Syðri-Brú lóð og verður heimilt að reisa allt að 150 fm frístundahús ásamt 30 fm geymslu á hvorri þeirra. Samþykkt að auglýsa skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar staðfesting á neysluvatni liggur fyrir sem og heimild Vegagerðarinnar um tengingu við þjóðveg.  
  1. Syðri-Brú í Grímsnes. Endurskoðun deiliskipulags frístundabyggðar.
20070198215 Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 21. desember 2007 varðandi endurskoðun deiliskipulags frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar. Óskað er eftir frekari rökstuðningi vegna umsagnar Umhverfisstofnunar um mýrlendi auk þess sem farið er fram á frekari upplýsingar um útfærslu fráveitu á svæðinu. Skipulagsnefnd vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.  
  1. Vatnsholt í Grímsnesi. Skógrækt. 20080144535
Lagt fram til kynningar erindi Böðvars Guðmundssonar, Suðurlandsskógum, dags. 18. desember 2007 þar sem kynnt eru áform um skógrækt á um 25 ha landi í Vatnsholti. Fram kemur að ræktað verði á holtum sem standa upp úr mýrinni og því verði um svokallaða skæklaskógrækt að ræða sem aðskilda skógarlundi.  
  1. Nesjar í Grafningi. Setberg, deiliskipulag tveggja frístundahúsalóða.
20080188543 Lögð fram tillaga Péturs H.Jónssonar arkitekts af deiliskipulagi tveggja frístundahúsalóða úr landi Nesja. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir tveimur frístundahúsalóðum sem er 4,1 ha og 5,1 ha að stærð á svæði ofan Grafningsvegar vestan við Hestvík. Heimilt verður að reisa 50-300 fm frístundahús á lóðunum auk allt að 40 fm aukahúss. Á fundi skipulagsnefndar
  1. desember var tekin fyrir tillaga (mál 20071242512) að deiliskipulagi
tveggja lóða á svæði sem liggur upp að þessu, en er hinum megin vegarins. Skipulagsnefnd telur að sameina eigi þessi tvær deiliskipulagsáætlanir og frestar afgreiðslu málsins þar til það hefur verið gert og þar til umsagnir Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands liggja fyrir.   Hrunamannahreppur
  1. Grafarbakki, . Breyting á aðal- og deiliskipulagi.
Lagt fram erindi Verkfræðistofu Suðurlands dags. 23. nóvember 2007, f.h. landeigenda Grafarbakka II, og meðfylgjandi uppdrátt í mkv. 1:2.500 dags. 1. nóvember 2007 þar sem óskað er eftir að um 2,6 ha spildu úr landi Grafarbakka verði breytt í íbúðarsvæði. Umrætt svæði var á sínum tíma ekki samþykkt undir lóðir fyrir frístundabyggð. Skipulagsnefnd vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.  
  1. Syðra-Langholt, Holtabyggð. Breyting á deiliskipulagi.
Lögð fram teikning af 136 fm frístundahúsi sem fyrirhugað er að reisa á lóð innan frístundabyggðarinnar Holtabyggð. Í gildandi skilmálum er eingöngu heimilt að reisa 120 fm hús. Fyrir liggur samþykki aðliggjandi lóðarhafa og eigenda landsins. Samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi byggðarinnar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga á þann hátt að heimilt verði að reisa hús þar sem hámarksnýtingarhlutfall verður 0.03.   Skeiða-og Gnúpverjahreppur
  1. Álfsstaðir. Lóðablað. 20080186530
Lagt fram lóðablað Péturs H. Jónssonar arkitekts dags. desember 2007 yfir 9,85 ha land úr landi Álfsstaða. Landið liggur að Birnustöðum að vestanverðu, Álfsstaðarvegi (nr. 324) að norðanverðu og Miðmundartjörn að austanverðu. Fyrir liggur samþykki eiganda Birnustaða I á landamerkjum spildunnar. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Ósabakki 1 og 3. Lóðablað og samruni lands. 20080138542
Lagt fram lóðablað dags 18. janúar 2008 yfir 4 ha spildu úr Ósabakka 1 (landr. 166486). Þegar lóðin hefur veirð stofnuð er gert ráð fyrir að hún verði sameinuð Ósabakka 3 (landr. 166488, ásamt lóðum með landr. 211669 og 189805. Samþykkt skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.  
  1. Hagi, Undraland. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.
20080169531 Lögð fram tillaga Landmótunar að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Haga. Í tillögunni felst að lóðinni Undraland er skipt í tvær lóðir, önnur verður um 0,6 ha og hin 8,1 ha. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin Undraland 6,6 en skv. landskiptagjörð frá 1999 8,8 ha og er stærð lóðarinnar lagfærð í samræmi við það. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að reisa hús með nýtingarhlutfall 0.03 eða að hámarki 300 fm. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarmála.   Flóahreppur
  1. Fljótshólar IV í fyrrum Gaulverjabæjarhreppi. Deiliskipulag landsspildu
fyrir íbúðarhús og útihús. 20080168544 Lögð fram tillaga Verksmiðjunnar, teikni- og verkfræðiþjónustu, af 7,4 ha spildu (landnr. 212340) úr landi Fljótshóla I og IV.Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir byggingarreit (merktur A) fyrir íbúðarhús og bílskúr og öðrum byggingarreit (merktur B) fyrir húsnæði tengdum frístundabúskap. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga með fyrirvara um leyfi Vegagerðarinnar vegna vegtengingar.  
  1. Langsstaðir . Deiliskipulag nýbýlis. 20080138548
Lögð fram tillaga Landmótunar að deiliskipulagi nýbýlis á 3 ha spildu úr landi Langsstaða, rétt vestan við Þingborg. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir byggingarreit þar sem heimilt verður að reisa allt að 1.400 fm hús sem hýsa á pökkunarstöð fyrir garðávexti, handverksstofu, íbúð og skrifstofur. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar leyfi Vegagerðarinnar fyrir tengingu lóðarinnar liggur fyrir og byggingarreit breytt þannig að hann verði a.m.k. 100 m frá Villingaholtsvegi.  
  1. Rútsstaðir í fyrrum Gaulverjabæjarhreppi. Deiliskipulag landsspildu
fyrir íbúðarhús, hesthús og vélageymslu. 20080176545 Lögð fram tillaga Verksmiðjunnar, teikni- og verkfræðiþjónustu, af 15,63 ha spildu úr landi Rútsstaða. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir byggingarreit (merktur A) fyrir íbúðarhús og bílskúr og öðrum byggingarreit (merktur B) fyrir vélageymslu og hesthúsi. Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þegar leyfi Vegagerðarinnar fyrir tengingu lóðarinnar liggur fyrir og byggingarreit breytt þannig að hann verði a.m.k. 100 m frá Gaulverjabæjarvegi.   Fleira ekki tekið fyrir Fundi slitið klukkan kl. 12:15 Laugarvatni 30. janúar 2007 Margeir Ingólfsson (8721) Ingvar Ingvarsson (8719) Sigurður Ingi Jóhannsson (8710) Gunnar Örn Marteinsson (8720) Aðalsteinn Sveinsson (8722) Pétur Ingi Haraldsson
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?