Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

403. fundur 04. febrúar 2026 kl. 09:00 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

318. fundur haldinn 28.01.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3 til 11.
-liður 3, Skálabrekka og Heiðarbær; Frístundabyggð F10; Aðalskipulagsbreyting 2601036
Lögð er fram tillaga óverulegrar aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Tilgangur aðalskipulagsbreytingarinnar er að uppfæra töflu og lýsingu frístundabyggðarsvæðisins F10, þannig að aðalskipulagið sé í samræmi við gildandi deiliskipulög á svæðinu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent Skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.

-liður 4, Skálabrekka Vestri L229116; Lindarbrekkugata, Unnargata og Guðrúnargata; Lega, stærð og fjöldi lóða; Deiliskipulagsbreyting 2504067
Lögð er fram, eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundabyggðar í Skálabrekku Vestri. Breytingar eru m.a. gerðar á legu og stærð lóða á svæðinu auk þess sem þeim er fjölgað úr 21 í 23. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um niðurstöðu aðalskipulagsbreytingar á svæðinu. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.



-liður 5, Syðri-Reykir 2 L167163; Frístundasvæði F69, Lækjarbraut; Deiliskipulag 2601029
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Syðri-Reykja 2 L167163 í Bláskógabyggð. Deiliskipulagið nær yfir um 6 ha lands. Í deiliskipulaginu felst að gert er ráð fyrir 10 frístundalóðum að stærðinni 5.320 til 6.040 m þ.e. Lækjarbraut 1 til 10. Á lóðunum er heimilt að reisa eitt frístundahús og aukahús/gestahús sem getur verið allt að 40 m2 og geymslu allt að 15 m2.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

-liður 6, Tungubakki 1 L238041 og 2 L238042; Skilgreining lands; Deiliskipulag 2509002
Lögð er fram tillaga deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til Tungubakka 1 L238041 og Tungubakka 2 L238042 í Bláskógabyggð. Í deiliskipulaginu felst að byggingarreitir eru skilgreindir á hvorri lóð þar sem heimilt er að reisa íbúðarhús að hámarki 300 fm. Auk þess er heimilt að reisa bílskúr og gestahús ásamt skemmu/geymslu. Hámarksbyggingarmagn er 500 fm með íbúðarhúsi og hámarksmænishæð er 5,5m. Aðkoma að lóðunum er frá Einholtsvegi. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og fornleifaskráningu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

-liður 7, Fell L177478; Landbúnaðarsvæði (Engjaholt) í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting 2404070
Lögð er fram, eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar, tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Fells L177478. Um er að ræða alls um 16,3 ha sem tillagan tekur til. 11,3 ha svæði sunnan Biskupstungabrautar sem verður skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði og 5 ha norðan Biskupstungnabrautar sem skiptist í 2,6 ha verslunar- og þjónustusvæði og 2,4 ha frístundasvæði. Innan breytingarinnar er gert ráð fyrir heimild fyrir uppbyggingu hótels og bygginga því tengdu alls um 8.500 fm fyrir allt að 200 gesti. Auk þess er gert ráð fyrir heimild fyrir 100 litlum gistihúsum til útleigu. Heildarbyggingarmagn slíkra húsa geti verið allt að 3.500 fm fyrir allt að 200 gesti. Auk þess er gert ráð fyrir heimild fyrir allt að 12 íbúðar-, útleigu- og starfsmannahúsum á svæðinu norðan Biskupstungabrautar. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

-liður 8, Fell L177478; Landbúnaðarsvæði (Engjaholt) í verslun- og þjónustu; Deiliskipulag 2408104
Lögð er fram tillaga deiliskipulags eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar, sem tekur til lands Fells L177478 (Engjaholt). Deiliskipulagssvæðið hefur verið minnkað þannig að það nær ekki yfir landið norðan Biskupstungnabrautar og er um 11 ha að stærð. Samkvæmt fyrirliggjandi aðalskipulagsbreytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015 -2027, dagsett 23. ágúst 2024 og endurskoðaðri 14. febrúar, 2. maí 2025 og 23. febrúar 2026, er landið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði, merkt VÞ45. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir einni lóð. Á lóðinni er gert ráð fyrir 100 litlum gistihúsum til útleigu að stærðinni 25 fm-40 fm. Heildarbyggingamagn lítilla gistihúsa til útleigu verður að hámarki 3.500 fm og í þeim geta verið allt að 200 gestir. Í tengslum við útleiguhúsin er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsum að hámarki 2.000 fm. Á reitnum er einnig gert ráð fyrir hóteli ásamt veitingarekstri og þjónustuhúsi. Heildarbyggingamagn Hótels og byggingum því tengdu verði að hámarki 8.500 fm og geti hýst allt að 200 gesti. Heildarbyggingamagn á byggingarreitnum er að hámarki 14.000 fm. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Til að koma til móts við athugasemdir sem bárust hefur deiliskipulagssvæðið verið minnkað þannig að það nær ekki yfir landið norðan Biskupstungnabrautar og er um 11 ha að stærð. Jafnframt er búið að uppfæra gögnin sem við á með fullnægjandi hætti í samræmi við þær athugasemdir sem bárust við yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Með fyrirvara um samþykkta aðalskipulagsbreytingu á svæðinu.

-liður 9, Úthlíð 2 L167181; Afmörkun lóðar Vörðás 6; Deiliskipulagsbreyting 2510044
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir grenndarkynningu, sem tekur til Úthlíðar 2 L167181 í Bláskógabyggð. Breytingin felst í afmörkun nýrrar 3.442,8 m2 lóðar sem fær staðfangið Vörðás 6. Aðkoma að lóðinni er frá Laugarvatnsvegi (nr. 37) og þaðan um aðkomuveg sem liggur um frístundabyggðina. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir grenndarkynningu Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

-liður 10, Laugarvatnsvegur; Styrking vegar; Framkvæmdaleyfi 2601067
Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi sem tekur til Laugarvatnsvegar í Bláskógabyggð. Í framkvæmdinni felst styrking, breikkun og malbikun á 3 km kafla á Laugarvatnsvegi frá Laugarvatni að Hjálmsstöðum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins. Af hálfu Blaskógabyggðar er áréttað að gengið verði frá reiðvegi meðfram veginum samhliða framkvæmdinni.

-liður 11, Reykjabraut 1 L192616; Breyttur byggingarreitur; Deiliskipulagsbreyting 2601040
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Reykjabrautar 1 L192616 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur færist nær gangstétt um 3 m.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir afstöðumynd.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar

2601002

74. fundur haldinn 27.01.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

3.Fundargerð afgreiðslufunda byggingarfulltrúa

2601005

242. fundur haldinn 21. janúar. Mál nr. 15 er sérstakur liður á dagskrá þessa fundar, sjá 28. lið.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2601056

992. fundur haldinn 23.01.2026
Lagt fram til kynningar.

5.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga

2601057

Fundur haldinn 27.01.2026
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601058

251. fundur haldinn 28.01.2026, ásamt gögnum er varða breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og kynningu á reglugerð um fráveitur og skólphreinsun.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601033

Fundur haldinn 19.01.2026
-liður 2, tillaga stjórnar um að ráðinn verði forstöðumaður fyrir SVÁ í fullt starf, tímabundið til eins árs, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga um fjárheimildir byggðasamlagsins.
Sveitarstjórn telur rétt að skólanefndir sveitarfélaganna fái skýrslu um úttekt á starfseminni til kynningar áður en málið verður afgreitt. Einnig leggur sveitarstjórn til að haldinn verði sameiginlegur fundur allra sveitarstjórnanna til að fara yfir málið.

Anna Greta Ólafsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Skýrsla um úttekt á starfsemi SVÁ
Skýrslan setur fram verulegar efasemdir um skilvirkni og gæði þjónustunnar. Í heild benda gögn skýrslunnar til þess að kjarni vandans sé kerfislægur: skortur á virkri forystu og skilvirku skipulagi, framkvæmdarleysi og takmarkaðri getu til að leiða skólana faglega. Þegar slíkir þættir eru hindrunin, er reynslan úr gæðastjórnun og umbótastarfi sú að „lagfæringar innan sama ramma“ skila oft litlum árangri.
Varðandi verktöku og aðkeypta þjónustu þá bendir skýrslan beinlínis til þess að verktaka sálfræðinga hafi ekki endilega lengt biðtíma mögulega þvert á móti. Ég tel því að aðkeypt sérfræðiþjónusta/verktaka geti einmitt verið gagnleg leið til að tryggja afhendingu og sveigjanleika. Vandi þjónustunnar liggur ekki að mínu mati alls ekki í meintum mönnunarvanda.
Áskorun til sveitarstjórna um nýja nálgun og nýja skólaþjónustu sem væri byggð upp á þremur skýrum og aðskildum hlutverkum, þar sem þungamiðjan er á skólamiðaða kerfisbundna skólaþjónustu með reglubundinni viðveru og þátttöku sérfræðinganna í skólastarfi.
1.
Skólamiðað, kerfisbundið stuðningshlutverk:
Reglubundin og skipulögð viðvera sérfræðinga í skólastarfi í merkingunni að þjónustan vinni með starfsfólki skólanna að umbótum með handleiðslu, ráðgjöf, þjálfun í framkvæmd og uppbyggingu starfs- og kennsluhátta.
Stutt dæmi: Talmeinafræðingur eða sálfræðingur kemur inn í skólann á föstum dögum, fylgist með námsumhverfi og starfsháttum, greinir mynstur sem hafa áhrif á málþroska, lestur, hegðun eða líðan og vinnur með kennurum og stjórnendum að raunhæfum breytingum ? með því að sýna og þjálfa aðferðir í framkvæmd, ekki einungis skila áliti um eitt afmarkað barn.
2.
Ráðgjöf til sveitarstjórna og skólanefnda um lögbundið eftirlit og gæðatryggingu:
Skólaþjónustan á að styðja sveitarstjórnir/skólanefndir til að sinna lögbundnu hlutverki sínu um eftirlit með skólastarfi og að tryggja að framkvæmd skólastarfs samræmist lögum og reglugerðum.
Stutt dæmi: Kerfisbundin yfirferð og leiðsögn vegna atriða eins og fjölda skóladaga í skóladagatölum, rétts kennslutímamagns og réttrar dreifingar kennslustunda milli námsgreina, og samræmis milli áætlana og raunverulegrar framkvæmdar.
3.
Einstaklings- og fjölskyldumál (afmarkað og markvisst ? ekki þungamiðja):
Þjónustan þarf einnig að geta sinnt einstaklingsbundnum málum þegar við á (t.d. teymisvinna, utanumhald, viðeigandi greiningar og stuðningsáætlanir), en mikilvægt að þetta verði ekki meginstarfsemi né dragi úr skólamiðaðri þjónustu sem bætir kerfið og forvarnir. Einstaklingsmál eiga að vera skýrlega afmörkuð og ættu að færast og vinnast jafnvel meira innan velferðarþjónustunnar fremur en að vera kjarni skólaþjónustu.

Ályktun
Með hliðsjón af ofangreindu er ekkert í úttektinni sem bendir til annars en að endurreisa þurfi skólaþjónustuna frá grunni með nýju leiðtogateymi, markvissri nýliðun og með skýra sýn á skólamiðaða og kerfisbundna skólaþjónustu. Það er gríðarlega mikilvægt að þrátt fyrir að fyrri tilraunir hafi ekki skilað tilætluðum árangri, að það stöðvi okkur ekki í að endurreisa þjónustuna enn og aftur frá grunni. Við verðum að vera einsett í að gera það eins oft og þurfa þykir til að ná markmiðum okkar um að reka hér landsins bestu skóla, enda er ávinningurinn fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið einfaldlega of mikilvægur til að gera neitt annað.

8.Fundargerð fagnefndar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601066

5. fundur haldinn 13.01.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1 til 3.
-liður 1, tillaga að reglum um akstursþjónustu aldraðra. Sveitarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða fyrir sitt leyti.
-liður 2, tillaga að viðmiðunarreglum vegna einstaklingsstuðnings. Sveitarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða fyrir sitt leyti.
-liður 3, tillaga að hækkun fjárhagsaðstoðar og breytingum á gjaldskrám. Sveitarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða fyrir sitt leyti.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

9.Aukaaðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands

2601013

Aukaaðalfundur haldinn 16.01.2026, ásamt viðauka við fjárhagsáætlun og tillögu að breytingum á samþykktum. Afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 5a, tillögu að breytingum á samþykktum Sorpstöðvarinnar, og 5c, tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.a. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16. janúar 2026 um tillögur að breytingu á samþykktum Sorpstöðvarinnar.
Lagðar eru fram til fyrri umræðu breytingar á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs. ásamt fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvarinnar frá 16. janúar 2026. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki að vísa fyrirliggjandi tillögu að breytingum á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs. til seinni umræðu.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.c. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16. janúar 2026 um viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvarinnar.
Lagður er fram til samþykktar viðauki við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs. ásamt fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvarinnar frá 16. janúar 2026. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki viðaukann. Ekki er gert ráð fyrir auknum framlögum aðildarsveitarfélaga SOS vegna málsins.
Tillagan er samþykkt með fimm atkvæðum, gegn atkvæðum Önnu Gretu Ólafsdóttur og Hildar Hálfdanardóttur.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

10.Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands

2601028

343. fundur haldinn 16.01.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

11.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga

2601053

20. fundur haldinn 28.01.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

12.Námsvist utan lögheimilissveitarfélags

2601043

Beiðni, dags. 22.01.2026, um að nemandi með lögheimili utan Bláskógabyggðar fái að stunda nám við Reykholtsskóla skólaárið 2025-2026.
Sveitarstjórn samþykkir erindið. Um greiðslur fari skv. viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga, auk þess sem samið verði um annan kostnað.

13.Stækkun Bláskógaskóla Laugarvatni

2601054

Tillaga um stofnun vinnuhóps vegna hönnunar viðbyggingar við Bláskógaskóla Laugarvatni
Lagt er til við sveitarstjórn að skipaður verði vinnuhópur til að vinna að hönnun viðbyggingar við Bláskógaskóla. Undirbúningsvinna hefur átt sér stað þar sem farið hefur verið yfir núverandi húsnæði og teikningar af því, skólastjórnendur hafa uppfært þarfagreiningu og viðbótarbyggingarmagn hefur verið áætlað gróflega.
Vinnuhópurinn fundi reglulega með hönnuði og haldin verði vinnustofa í skólanum með aðkomu fleiri fulltrúa skólasamfélagsins. Starfsmenn sveitarfélagsins verði kallaðir til eftir þörfum.
Sveitarstjórn tilnefnir Stefaníu Hákonardóttur, Önnu Gretu Ólafsdóttur, Hildi Hálfdanardóttur, Svein Inga Sveinbjörnsson og Helga Kjartansson til setu í hópnum.


Fylgiskjöl:

14.Stækkun Reykholtsskóla

2601055

Tillaga um stofnun vinnuhóps vegna hönnunar viðbyggingar við Reykholtsskóla
Lagt er til við sveitarstjórn að skipaður verði vinnuhópur til að vinna að hönnun viðbyggingar við Reykholtsskóla. Undirbúningsvinna hefur átt sér stað þar sem farið hefur verið yfir núverandi húsnæði og teikningar af því, skólastjórnendur hafa uppfært þarfagreiningu og viðbótarbyggingarmagn hefur verið áætlað gróflega.
Vinnuhópurinn fundi reglulega með hönnuði og haldin verði vinnustofa í skólanum með aðkomu fleiri fulltrúa skólasamfélagsins. Starfsmenn sveitarfélagsins verði kallaðir til eftir þörfum.
Sveitarstjórn tilnefnir Stefaníu Hákonardóttur, Önnu Gretu Ólafsdóttur, Hildi Hálfdanardóttur, Svein Inga Sveinbjörnsson og Helga Kjartansson til setu í hópnum.


Fylgiskjöl:

15.Ráðningarsamningar oddvita og sveitarstjóra

2312004

Tillaga um breytingu á ákvæðum ráðningarsamninga við oddvita og sveitarstjóra um launahækkun sem koma á til framkvæmda frá 1. janúar sl.
Ásta Stefánsdóttir og Helgi Kjartansson viku af fundi. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu oddvita og sveitarstjóra um að laun þeirra hækki um 3,5% frá 1. janúar 2026, í stað þess að fylgja hækkun launavísitölu, sem nemur um 7%. Drög að samkomulagi þess efnis sem liggja fyrir fundinum verða undirrituð.
Fylgiskjöl:

16.CanAM Iceland Hill Rally 2026

2510043

Erindi keppnisstjórnar CanAm Iceland Hill Rally 2026, frá 26.01.2026, þar sem gerð er grein fyrir keppnisleið sem óskað er eftir samþykki fyrir og áætlað er að ekin verði 6. til 8. ágúst n.k. Áður á dagskrá á 398. fundi.
Umsókn og leiðarlýsing liggur fyrir. Sveitarstjórn samþykkir erindið, með fyrirvara um góðan frágang á svæðinu eftir keppnina.

17.Úttekt á slökkviliði

2601061

Erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 26.01.2026, varðandi úttekt á starfsemi Brunavarna Árnessýslu.
Erindið var lagt fram.

18.Lóðarleigusamningur um Laugargerði, Laugarási

2411027

Lóðarleigusamningur um Laugargerði, fulltrúi eiganda kemur inn á fundinn.
Fulltrúi eiganda hefur óskað eftir frestun fundarins.

19.Holtagata 9 og 11 lóðarleigusamningar

2511064

Skil á lóðunum Holtagötu 9 og 11, Laugarási.
Sveitarstjórn samþykkir að lóðunum verði skilað og felur sveitarstjóra að ganga frá gögnum þar að lútandi.

20.Bláskógaskóli Laugarvatni, fyrirkomulag stjórnunar

2601067

Fyrirkomulag stjórnunar Bláskógaskóla
Lagt var fram minnisblað sveitarstjóra. Umræður urðu um málið. Sveitarstjórn samþykkir að vísa málinu til skólanefndar til umsagnar.

21.Verkefnið IceWater, framlag Bláskógabyggðar og greiðsluflæði úr Life-styrkveitingu Evrópusambandsins

2412013

Erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands vegna kostnaðar við vinnu að verkefninu og greiðsluflæði
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hlaut á árinu 2025 styrk frá Evrópusambandinu að fjárhæð kr. 17.690.000 í gegnum Life styrkjapakka ESB sem hluta af verkefni sem margar innlendar stofnanir og sveitarfélög koma að. Verkefnið snýr að innleiðingu vatnaáætlunar og sá hluti þess sem HES kemur að snýr að fráveitumálum við Þingvallavatn. Upphaflega leitaði Umhverfisráðuneytið til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um þátttöku í verkefninu, en úr varð að hýsa það hjá HES, enda hafði HES unnið að því að koma fráveitumálum við Þingvallvatn í betra lag. Heildarkostnaðaráætlun HES er kr. 29.492.000. Mótframlag er kr. 11.794.000 og kemur það í hlut Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps að greiða það. Styrkfjárhæðin frá ESB er greidd í þrennu lagi og hafa þegar verið greiddar 5.016.972 kr. til HES. Næsta greiðsla er væntanleg árið 2028 og lokagreiðsla 2031. Verkefni HES hefur ekki svo langan verktíma, en áætlað er að því verði lokið á árinu 2026. Fjárþörf HES vegna síðasta árs er kr. 8.558.281 og áætluð fjárþörf vegna ársins 2026 er kr. 15.916.328. Þar með er talið óbeinn kostnaður og reiknuð hlutdeild í launum framkvæmdastjóra HSL, sem samtals nemur kr. 2.822.536.
Lagt er til að Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur greiði mótframlagið til HES í febrúar 2026, 50% hvort sveitarfélag, eða 5.897.000 kr. Einnig er lagt til að Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur láni HSL vegna launakostnaðar starfsmanns og útlagðs kostnaðar, allt að kr. 9.850.492 eða 4.925.246 kr hvort sveitarfélag, eftir því sem fjárþörf skapast vegna verkefnisins, og að HSL endurgreiði það síðan til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps þegar frekari styrkgreiðslur verða inntar af hendi frá ESB, annars vegar á árinu 2028 og hins vegar á árinu 2031.
Greiðsla mótframlags rúmast innan fjárhagsáætlunar. Gerður verður viðauki við fjáhagsáætlun Bláskógabyggðar áður en til greiðslu kemur á þeim hluta sem sveitarfélagið lánar HES.
Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

22.Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks, 311. mál

2601051

Erindi velferðarnefnd Alþingis, dags. 29.01.2026, þar sem sent er til umsagnar 311. mál réttindavernd fatlaðs fólks

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.

Lagt fram til kynningar.

23.Frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn

2601052

Erindi velferðarnefndar Alþingis, dags. 28.01.2026, þar sem sent er til umsagnar 305. mál, framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.

Lagt fram til kynningar.

24.Frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

2601050

Erindi velferðarnefndar Alþingis, dags. 29.01.2026, þar sem sent er til umsagnar 312. mál, atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Lagt fram til kynningar.

25.Þingsályktun nr. 24 152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða, 307. mál

2601060

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 29.01.2026 þar sem sent er til umsagnar 307. mál breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.

26.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl

2509014

Erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 21.01.2026, þar sem vakin er athygli á því að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum er komið til umsagnar.

Umsagnarfrestur er til 17. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjóra er falið að skila umsögn um frumvarpið.

27.Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030, 322. mál

2601063

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 21.01.2026, þar sem sent er til umsagnar 322. mál samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn leggur áherslu á að auknu fjárframlagi verði varið til tengivega. Oddvita og sveitarstjóra er falið að senda inn umsögn.

28.Rekstrarleyfisumsókn Brúarbyggð Ártún 19 L239263

2601064

Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. um umsókn frá Írisi Jóhannesdóttur fyrir hönd O5 Fasteignafélag ehf, kt. 6604240750 um rekstrarleyfi til gistingar fyrir Brúarárbyggð, Ártúni 19, 806 Selfossi, F2538028. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn leggst gegn útgáfu rekstrarleyfis, enda samræmist starfsemin ekki skipulagsskilmálum.

29.Aðalfundur Límtré-Vírnet 2026

2601059

Boð á aðalfund Límtrés-Vírnets ehf sem haldinn verður 13. febrúar 2026
Fundarboðið var lagt fram til kynningar.

30.Úttekt á starfsemi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601025

Skýrsla um úttekt á SVÁ
Skýrslan var lögð fram.

31.Námskeiðið Inngilding og samþætting

2601062

Kynning Jafnréttisstofu, dags. 23.01.2026 á námskeiðinu Inngilding og samþætting sem haldið er fyrir sveitarfélög.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?